Undanfarin 10 ára hafa að meðaltali 40 einstaklingar á ári látist í sjálfsvígi á Íslandi. Þeim sem látast vegna óhappaeitrana hér á landi hefur hins vegar fjölgað mikið á síðustu 15 árum og nálgast nú fjöldann sem fellur fyrir eigin hendi ár hvert. Rannsóknir hefur skort á áhættuþáttum sjálfsvíga og dauðsföllum vegna óhappaeitrana hér á landi á síðustu áratugum og aukin þörf er á samstarfsvettvangi til að auka þekkingu á slíkum dauðsföllum.
Miðpunktur, samstarfsvettvangur rannsókna á áhættuþáttum sjálfsvíga og dauðsföllum vegna óhappaeitrana, verður formlega stofnaður á málþingi í Háskólanum á Akureyri mánudaginn 23. nóvember. Þar munu fulltrúar sex stofnana sem að honum standa undirrita samning um samstarf til að efla slíkar rannsóknir hér á landi. Markmiðið er að skapa traustari þekkingargrunn fyrir forvarnir og miðlun þekkingar til stjórnvalda og annarra aðila sem vinna að forvörnum á þessum vettvangi eða styðja þær í verki.
Að Miðpunkti standa Háskóli Íslands, Háskólinn á Akureyri, Háskólinn í Reykjavík, Embætti landlæknis, Landspítali og Sjúkrahúsið á Akureyri.
Málþingið fer fram í stofu M102 kl. 9:00 –15:00. Því verður einnig streymt.
Áslaug Ásgeirsdóttir, rektor Háskólans á Akureyri, setur þingið og Alma D. Möller heilbrigðisráðherra flytur ávarp. Fyrirlesarar munu meðal annars fjalla um áhættuþætti sjálfsvíga hér á landi, þróun fjölda dauðsfalla vegna óhappaeitrana, reynslu ungra karlmanna sem lifað hafa af sjálfsvígstilraun, hvernig réttarlæknar ákvarða hvað telst sjálfsvíg og hvað dauðsfall vegna óhappaeitrunar auk þess að ræða mikilvægi félagslegs stuðnings og forvarnarstarfs. Þinginu lýkur með umræðum um næstu skref í uppbyggingu Miðpunkts.
Aðgangur er ókeypis en skráningar er þörf. · Smelltu hér til að skrá þig á málþingið. · Smelltu hér til að sjá dagskrá og nálgast streymi.
