Velferðarstjarnan í sölu fjórða árið í röð

Björn Böðvarsson, framleiðslustjóri DNG, Hilmar Guðmundsson sölu- og markaðsstjóri Slippsins, Eggert…
Björn Böðvarsson, framleiðslustjóri DNG, Hilmar Guðmundsson sölu- og markaðsstjóri Slippsins, Eggert Benjamínsson starfsmaður Slippsins, Guðný Jóna Þorsteinsdóttir ráðgjafi hjá Velferðarsjóði Eyjafjarðarsvæðis, Kristín Anna Kristjánsdóttir og Elva Ýr Kristjánsdóttir fyrir hönd Glerártorgs. Mynd æa vef Glerártords

Árleg fjáröflun Velferðarsjóðs Eyjafjarðarsvæðis hófst um liðna helgi með sölu á Velferðarstjörnunni á Glerártorgi. Þetta er fjórða árið í röð sem stjarnan er seld. Allur ágóði rennur óskiptur til Velferðarsjóðsins sem styður efnaminni einstaklinga og fjölskyldur á Eyjafjarðarsvæðinu.

Velferðarstjarnan er samstarfsverkefni Velferðarsjóðsins, Glerártorgs og Slippsins. Allir sem taka þátt í verkefninu gefa vinnu sína.

Forsvarsmenn sjóðsins segja söluna hafa gengið vel undanfarin ár og vakið jákvæða athygli á starfsemi hans. Þeir hvetja íbúa til að kaupa stjörnuna og sýna þannig samstöðu með þeim sem þurfa á aðstoð að halda.

450 fjölskyldur fengu jólaaðstoð í fyrra

Velferðarsjóður Eyjafjarðarsvæðis var stofnaður árið 2021 og veitir aðstoð allt árið um kring. Þörfin hefur aukist á síðustu árum og sóttu um 450 einstaklingar og fjölskyldur um jólaaðstoð árið 2025 og er gert ráð fyrir svipuðum fjölda nú. Það sem af er árinu hafa mánaðarlegar úthlutanir verið um 600 talsins frá janúar til október.

Aukin eftirspurn hefur kallað á nýjar leiðir til fjáröflunar, þar sem Velferðarstjarnan hefur reynst mikilvægt framlag

Nýjast