Betur fór en á horfði þegar Vilhelm Þorsteinsson EA losnaði frá bryggju í óveðrinu

Mögnuð mynd sem Ingimar Tryggvason vélstjóri á Húna tók sýnir vel hve tæpt stóð.
Mögnuð mynd sem Ingimar Tryggvason vélstjóri á Húna tók sýnir vel hve tæpt stóð.

Það gekk eitt og annað á í veðrinu í gærkvöldi, viðbragðsaðilar voru kallaðir út og höfðu í mörg horn að líta, enda veðrið snarklikkað satt best að segja.

Mest krefjandi verkefni kvöldsins kom kl. 21:30 þegar tilkynning kom um að Vilhelm Þorsteinsson EA 11, uppsjávarskip Samherja, hafði losnað frá bryggju í Krossanesi. Í ljós kom að bryggjupollar höfðu gefið sig og var skipið einungis á einni taug þegar að var komið.

Hafnarbátar Hafnasamlagsins Seifur og Sleipnir voru ræstir út ásamt félögum í Björgunnarsveitinni Súlum Mikið hafrót var en með hafnarbátnunum tókst vel að koma áhöfn um borð í Vilhelm sem gangsettu vélar skipsins. Seifur og Sleipnir aðstoðuðu við að ná Villhelm úr höfninni sem sigldi að Oddeyrarbryggju þar sem skipiðl agðist að

Ekki er talið að tjón hafi orðið á Vilhelm Þorsteinssyni EA 11 en það verður skoðað við betra tækifæri, en ljæsit er að þarna mátti ekki miklu muna að illa færia.

Eitthvert tjón var á hafnarmannvirkjum í Krossanesi, þegar bryggjupollar rifnuðu upp þegar veðurhamurinn var sem mestur.

Slíkur var atgangurinn að bryggjupollar sem eru  ekki beint  hrákasmíði rifnuðu upp  Mynd samherji.is

 

 

Mynd  Ingimar Tryggvason 

Nýjast