Þrengist um svigrúmið fyrir fleiri „síðustu sýningar“

Hlaðspretturinn er heiti sýningar Kristins G. Jóhannssonar sem opnuð verður í Mjólkurbúðinni á lauga…
Hlaðspretturinn er heiti sýningar Kristins G. Jóhannssonar sem opnuð verður í Mjólkurbúðinni á laugardag. Hér er Kristinn í vinnustofu sinni í Innbænum. Myndir: MÞÞ.

„Þær eru orðnar ansi margar sýningarnar sem ég hef á liðnum árum kynnt sem mínar síðustu. Það hefur fram til þessa reynst fleipur eitt,“ segir Kristinn G. Jóhannsson sem opnar sýningu á nýjum verkum í Mjólkurbúðinni á laugardag. Tilefnið er níræðisafmæli sem hann fagnar 21. desember næstkomandi, á stysta degi ársins.“ Heiti sýningarinnar
er Hlaðspretturinn, lokaspretturinn heim í hlað. „Mér sýnist að það fari að þrengjast svigrúmið til að halda fleiri „síðustu sýningar“ hjá mér og að ég standi nú loksins við stóru orðin.

Kristinn hélt sína fyrstu sýningu fyrir 72 árum. Það var á Varðborg á Akureyri í október árið 1954 oghann einungis 17 ára gamall.  Kristinn er stúdent frá MA 1956, en þá um haustið hélt hann til  náms við Myndlista- og handíðaskólann og þaðan lá leiðin í myndlistarnám í Edinborg.  „Migdreymdi um að lifa af listinni enkomst fljótt að því að betra er aðhafa fasta vinnu til að geta séð fjölskyldu farborða.“ Kristinn er lærður kennari ogaðalstarf hans í tæpa fjóra áratugi var við kennslu og skólastjórn, m.a. við Gagnfræðaskólann Ólafsfirði þar sem hann starfaði í 18 ár og Bröttuhlíðarskóla á Akureyri þar sem árin urðu 17. Meðframsínum opinberu störfum var hanniðinn við að mála. „Þegar opinberum störfum lauk gafst mér tóm til að sinna listinni af meiri krafti en oft áður. Það er munaður að verja öllum morgnum hér á vinnustofunni við að skapa ný verk. Pota í strigann og vita hvað úr verður.“

Þykist mála fram að hádegi

Kristinn heldur út í virka daginn rétt fyrir klukkan 7 á morgnana, nær andaktinni í útvarpinu á meðan hann ekur frá heimili sínum að vinnustofunni sem er í  Innbænum. „Ég byrja á því að ganga um þennan elsta hluta bæjarins um það bil tveggja kílómetra hring og tel mig með því ná betri meðvitund,“ segir hann en að lokinni göngu tekur hann upp pensilinn. Morgungöngum um Innbæinn gerði hann skil með myndröð um húsin og litskrúðið þar. Þau verk sýndi hann fyrir tveimur árum. „Ég þykist mála fram að hádegi, en þá fer ég heim
og klóra mér aðeins í hausnum. Tek svo til við eitthvað tilfallandi dund, kannski úti í garði eða snýst um sjálfan mig.

Áin kann vel við félagsskapinn

„Núna var komið að síðdegisgöngunni við Glerár, koma henni í mynd,“ segir Kristinn en hann býr við Lönguhlíð og hefur gert í yfir þrjá áratugi. Hann tekur að jafnaðitvær gönguferðir eftir göngustíg meðfram ánni. Sá fyrri er um miðjan daginn og hin síðari um kvöldið, „svo ég fari nú ekki of snemma að sofa,“ segir hann. Ánni veiti ekki af félagsskap og eftir því sem hann best viti kunni hún vel að meta að hafa hann á vappi á bökkunum. „Hún hefur oft sagt það við mig að ég sé betri en enginn.“

Tileinkuð Glerá

Sýning Kristins er tileinkuð Glerá og gönguleiðinni meðfram bökkum hennar. „Málverkin eru öll um Glerá og mig og okkarumhverfi og líf. „Straumur árinnar er stundum harður og umhverfið úfið, en stundum líður hún lygn fram. Umhverfið tekur mynd af veðurfari hverju sinni og veðurfari hugans, árstíðum og áreiti. Ég geng þarna mér til andlegrar upplyftingar og svo auðvitað er talið að göngutúrar geri skrokknum gott. Ég er heldur skárri að ég tel, ef ég sinni göngutúrunum,“ segir hann. „Ég mála eitt málverk af því sem ég sé á ferð minni og svo annað þar sem ég sýni áhrif þess sem fyrir augu ber þegar það er komið í óhlutbundið form.

Nýjast