Nýjar sjósundströppur í Hrísey

Mynd á vef Akureyrarbæjar María H. Tryggvadóttir
Mynd á vef Akureyrarbæjar María H. Tryggvadóttir

Framkvæmdum við nýjar sjósundströppur við Sæborgarfjöru í Hrísey er nú lokið. Aðeins merkingar eru eftir áður en aðstaðan er að fullu tilbúin.

Við Sæborgarfjöru eru góðar aðstæður til sjósunds en þar liggja tröppur yfir grjótgarðinn og niður á ströndina. Sjósundsfólk nýtir sér gjarnan aðstöðuna í Íþróttamiðstöðinni í Hrísey, sem er í næsta nágrenni, til að fara í sturtu, gufu eða heitan pott eftir sundið.

Gömlu tröppurnar höfðu látið undan veðri og vindum og því er ánægjulegt að búið sé að endurnýja þær og bæta aðstöðuna fyrir sjósundsfólk.

Nýjast