Vinsælt verkstjóranámskeið Iðunnar haldið á Akureyri

Harpa Guðfinnsdóttir, deildarstjóri þróunar og þekkingar hjá Iðunni fræðslusetri
Harpa Guðfinnsdóttir, deildarstjóri þróunar og þekkingar hjá Iðunni fræðslusetri

Iðan fræðslusetur býður nú upp á námskeiðið Verkstjóri í iðnaði – ábyrgð og verksvið á Akureyri dagana 19. og 20. nóvember. Námskeiðið hefur áður verið haldið í Reykjavík við góðar undirtektir og færist nú norður til að mæta þörf fyrir öfluga stjórnenda- og leiðtogaþjálfun í iðnaði víðar um landið.

„Góðir verkstjórar gegna lykilhlutverki í að skapa góðan vinnustað og því er mikilvægt að efla leiðtogahæfni þeirra, styrkja samskipti og auka skilning á þeirri ábyrgð sem fylgir starfinu,“ segir Harpa Guðfinnsdóttir, deildarstjóri þróunar og þekkingar hjá Iðunni fræðslusetri.

„Við höfum áður haldið námskeiðið í Reykjavík og fengið mjög góð viðbrögð frá þátttakendum. Það er því sérstaklega ánægjulegt að geta nú boðið upp á það á Akureyri og þannig gert þessa fræðslu aðgengilegri fyrir verkstjóra og stjórnendur á Norðurlandi,“ segir Harpa.

Mikil ábyrgð hvílir á verkstjórum

Hlutverk verkstjóra í iðnaði er fjölbreytt og ábyrgðin mikil. Verkstjórar þurfa meðal annars að halda utan um daglega stjórnun og skipulag starfsfólks, eiga samskipti við samstarfsfólk, yfirmenn og verkkaupa og sinna verkefnum sem tengjast öryggi, gæðum og rekstri.

Kennarar námskeiðsins eru Berglind Björk Hreinsdóttir og Harpa Þrastardóttir, stjórnendaráðgjafar hjá Kjarki ráðgjöf.

„Það er mikið lagt á verkstjóra án þess að þeir hafi fengið fræðsluna og þjálfunina til að sinna starfinu mjög vel,“ hefur Harpa Þrastardóttir bent á. Starfið krefjist bæði faglegrar þekkingar og hæfni í samskiptum og stjórnun.

Berglind hefur sömuleiðis bent á að verkstjórar beri mikla ábyrgð á starfsfólki sínu og vellíðan þess. Verkstjórar séu oft settir í srjórnendahlutverk vegna góðrar fagþekkingar en hafi ekki endilega fengið formlega þjálfun í stjórnun. Markviss fræðsla geti því skipt miklu máli.

Leiðtogahæfni, samskipti og ábyrgð

Námskeiðið er ætlað verkstjórum, nýjum stjórnendum og öðrum sem sinna daglegri stjórn og skipulagi starfsfólks á vinnustað. Markmiðið er að efla faglega hæfni þátttakenda í leiðtogahlutverkinu og auka skilning þeirra á ábyrgð sinni og því hvernig þeir geta stutt við og leitt teymi.

Meðal þess sem fjallað verður um er stjórnandahlutverkið, sjálfsþekking og ábyrgð, mannauðsstjórnun og jafningjastjórnun, samskipti og leiðtogafærni, öryggis- og vinnuvernd auk gæðastjórnunar og umhverfismála.

„Við viljum að þátttakendur fari af námskeiðinu með hagnýt verkfæri sem nýtast þeim strax í starfi. Það skilar sér bæði til verkstjórans sjálfs, starfsfólksins og fyrirtækisins í heild,“ segir Harpa Guðfinnsdóttir.

Námskeiðið fer fram hjá Símey, Þórsstíg 4 á Akureyri, 19. og 20. nóvember 2026, frá kl. 9–17 báða dagana.

Nánari upplýsingar og skráning eru á námskeiðsvef Iðunnar, https://www.idan.is

 

Nýjast