15. nóvember, 2026 - 14:02
Heiðrún E. Jónsdóttir
Heiðrún E.Jónsdóttir átti Lokaorðið í blaðinu s.l. fimmtudag
Það getur sannarlega verið notalegt að vera pikkfastur í þægindaramma. En er það þroskandi og skemmtilegt? Eða er þægindaramminn einfaldlega þroskaþjófur?
Höldum áfram að þroskast
Við þurfum ekki að hætta að þroskast og læra þótt við séum miðaldra, jafnvel síðmiðaldra. Í það minnsta ekki meðan við erum að takast á við áskoranir, gerum jafnvel einhver mistök sem við getum lært af, já eða smá prakkarastrik, sem gerir alla daga betri.
Nýtt áhugamál, nýtt nám, nýtt sport, nýir vinir
Það getur verið gaman og reyndar nauðsynlegt að prófa nýja hluti. Hvað með að prófa handmennt eða nýja íþrótt; golf, sund eða smella sér einfaldlega gönguskó og fara í göngu, þarf ekki að vera erfið fjallganga, bara súrefni og hreyfing. Eða hefja nám, t.d. í fjarnámi eða taka einstaka námskeið, með vinnu? Að læra nýtt tungumál, fara í einstaka kúrsa í mennta- eða háskóla eða taka stök námskeið. Við lærum ekki bara eitthvað nýtt, sjóndeildarhringurinn víkkar og möguleiki á að kynnast nýju fólki – sem þarf ekki endilega að vera leiðinlegt – kannski bara mjög skemmtilegt.
Meiriháttar ákvarðanir þarf þó að ígrunda afar vel
Að fara út fyrir þægindarammann þarf ekki að þýða að segja upp starfi á mánudegi, selja húsið og kaupa bitcoin á þriðjudegi, skilja við makann á miðvikudegi og stofna fyrirtæki á fimmtudegi. Að rjúka í ofangreint allt á sama tíma á meira skylt við áhættuhegðun en að skreppa út fyrir þægindarammann. En að fara í eina slíka ákvörðun að afar vel ígrunduðu máli, getur verið skynsamleg og góð ákvörðun, jaaa nema kannski að kaupa bitcoin fyrir aleiguna.
Að gera eitthvað, því maður hafi alltaf gert það – er ekki góð venja
Miðaldurinn hefur vissulega sína kosti. Við sem erum miðaldra, jafnvel síðmiðalda, höfum öðlast reynslu, þroska og þekkingu sem okkur skorti þegar við vorum yngri. Við vitum hvað hentar okkur, hvað við getum. En það er mikilvægt að festast ekki þar. Höldum áfram að þroskast og þróast.
Gleymum ekki barninu innra með okkur
Barninu sem gat tekið á stökk og skoðað nýjar leiðir. Við höfum öll gert eitthvað á árum áður sem við myndum ekki endilega gera aftur í dag. Sumt var óskynsamlegt, sumt vandræðalegt. En við sjáum ekki eftir því. Við upplifðum eitthvað nýtt, fórum út á brautir sem við þekktum ekki og lærðum eitthvað nýtt. Erum við nokkuð orðin of gömul fyrir slíkt?
Förum út fyrir þægindarammann
Er ekki bara góð hugmynd að fara út fyrir okkar rammgerða ramma, uppgötva eitthvað nýtt, verða víðsýnni og jafnvel kynnast nýju fólki. Það mun þroska okkur – og gæti kryddað hversdagsleikann. Það er aldrei of seint að þroskast og kynnast einhverju nýju. Svo mæli ég með reglulegum prakkarastrikum, það heldur okkur ungum.