Freyvangsleikhúsið Aðventuverkið Marísól og leitin að gleðinni

Freyvangsleikhúsið frumsýnir um aðra helgi, 20. nóvember, glænýtt íslenskt verk, Marísól og leitin að gleðinni. Verkið er eftir Jóhönnu S. Ingólfsdóttur og tónlistina samdi Eiríkur Bóasson sérstaklega fyrir þetta veri.

Sýningin er í leikstjórn Jóhönnu og er þetta í fimmta sinn sem hún leikstýrir barnaverki fyrir jólin hjá Freyvangsleikhúsinu. Jafnframt er þetta í fjórða sinn sem hún og Eiríkur störfuðu saman að tónlist og leik.

Hugljúf jólasaga

Þetta er hugljúf jólasaga um Marísól, tíu ára stúlku sem kvíðir komandi jólum þar sem faðir hennar, sem er sjómaður, þarf að vinna yfir hátíðarnar. Á Þorláksmessukvöld lifnar uppáhaldsbangsinn hennar, Viktor, við og tekur hana með í ævintýralegt ferðalag þar sem þau leita að gleðinni. Á leiðinni hitta þau ólíkar persónur sem allar hafa sína sýn á hvað raunveruleg gleði er. „Sagan minnir okkur á að gleðin leynist oft í litlu hlutunum, í því sem við gerum fyrir hvert annað og því sem kemur frá hjartanu.“

 Jóhönna S. Ingólfsdóttir

Sérstakt að setja sýningu upp án Eiríks

„Það sem gerir þessa uppfærslu sérstaklega mikilvæga fyrir okkur er að Eiríkur lést aðeins viku eftir að búið var að kasta í hlutverk. Þetta er því síðasta tónlistin sem hann samdi fyrir svið. Ég átti síðasta fund minn með Eika tæpum tveimur vikum áður en hann kvaddi og vorum við þá að leggja lokahönd á tónlistarmálin. Fyrir vikið hefur verið afar sérstakt að setja sýninguna saman án hans, þar sem hann hafði staðið við hlið mér í þessu ferli síðustu þrjú ár. Við erum því einstaklega þakklát fyrir að Hermann Arason skyldi taka að sér að halda utan um tónlistina og leiða hana áfram ásamt hljómsveit sýningarinnar, en það ferst honum vel úr hendi,“ segir Jóhanna.

Nýjast