Iðan fræðslusetur býður nú upp á námskeiðið Verkstjóri í iðnaði – ábyrgð og verksvið á Akureyri dagana 19. og 20. nóvember. Námskeiðið hefur áður verið haldið í Reykjavík við góðar undirtektir og færist nú norður til að mæta þörf fyrir öfluga stjórnenda- og leiðtogaþjálfun í iðnaði víðar um landið.
„Það er mikilvægt er að huga að framtíð Brekkukots og tryggja að starfsemin hafi til framtíðar aðstöðu sem hentar bæði þeim sem nýta þjónustuna og starfsfólkinu,“ segir Guðbjörg Anna Björnsdóttir formaður velferðarráðs Akureyrarbæjar.
Það gekk eitt og annað á í veðrinu í gærkvöldi, viðbragðsaðilar voru kallaðir út og höfðu í mörg horn að líta, enda veðrið snarklikkað satt best að segja.
„Þær eru orðnar ansi margar sýningarnar sem ég hef á liðnum árum kynnt sem mínar síðustu. Það hefur fram til þessa reynst fleipur eitt,“ segir Kristinn G. Jóhannsson sem opnar sýningu á nýjum verkum í Mjólkurbúðinni á laugardag. Tilefnið er níræðisafmæli sem hann fagnar 21. desember næstkomandi, á stysta degi ársins.“ Heiti sýningarinnarer Hlaðspretturinn, lokaspretturinn heim í hlað. „Mér sýnist að það fari að þrengjast svigrúmið til að halda fleiri „síðustu sýningar“ hjá mér og að ég standi nú loksins við stóru orðin.
Liðin hafa mæst tvisvar á tímabilinu. Fjölnir vann fyrri leik liðanna, 4-1, í Egilshöll í september, en SA Víkingar svöruðu fyrir sig með 8-6 sigri þegar liðin mættust á ný í Laugardalnum í október.
Sjúkrahúsið á Akureyri hefur hlotið bronsdekkið, viðurkenningu fyrir árangur í orkuskiptum í bílaflota ríkisstofnana og ríkisfyrirtækja. Hlutfall orkuskipta hjá SAk er nú 43,8% samkvæmt viðmiðum verkefnisins.