Minningardagur fórnarlamba bílslysa er í dag

Mynd Hilmar Friðjónsson
Mynd Hilmar Friðjónsson

Dagurinn er til að minnast þeirra sem látist hafa í umferðinni, leiða hugann að ábyrgð hvers og eins í umferðinni en ekki hvað síst að þakka þeim viðbragðsaðilum sem veita hjálp og björgun. Að þessu sinni er sérstök áhersla lögð á unga vegfarendur.

Dagskráin á Akureyri hefst kl. 14:00 á Hjalteyrargötu 12

Þyrla landhelgisgæslunnar lendir

Myndataka viðbragðsaðila

Heimir Ingimarason flytur When I Think of Angels

Gunnar Már Gunnarsson forseti bæjarstjórnar Akureyrar flytur ávarp

Emma Agneta Björgvinsdóttir flytur reynslusögu sína

Séra Sindri Geir Óskarsson flytur hugvekju og stýrir einnar mínútu þögn

Broddi Pálmi Ottesen Pétursson lögreglumaður flytur ávarp
 
Boðið verður upp á kaffi, kakó og með því.

Þau sem mæta á einkabílum eru beðin um að leggja á bílastæði Samherja. Einnig biðjum við fólk að sýna tímabundnum lokunum í kringum Hjalteyrargötu 12 vegna þyrlulendingar skilning.
 
Við hvetjum öll til að mæta.
 
Einkennislag dagsins er lag KK, When I Think of Angels, í flutningi hans og Ellenar sem samið var til minningar um systur þeirra sem lést í umferðarslysi í Bandaríkjunum árið 1992. Lagið verður flutt samtímis á öllum útvarpsstöðum kl. 14 í dag .

Nýjast