Vinna við breytingar á umferðarljósum

Umfangsmestu breytingarnar verða á gatnamótum Glerárgötu og Strandgötu, Þingvallastrætis og Dalsbrautar, við gangbraut yfir Dalsbraut gegnt Lundarskóla og við Hrísalund.

dag hefst vinna við breytingar á nokkrum umferðarljósum í bænum. Umfangsmestu breytingarnar verða á gatnamótum Glerárgötu og Strandgötu, Þingvallastrætis og Dalsbrautar, við gangbraut yfir Dalsbraut gegnt Lundarskóla og við Hrísalund. Auk þess verða gerðar minni háttar breytingar og stillingar á öðrum umferðarljósum í bænum.

Gangbrautarljósunum yfir Dalsbraut gegnt Lundarskóla verður breytt þannig að þau virki á sama hátt og önnur gangbrautarljós í bænum. Að jafnaði verður grænt ljós fyrir bíla og rautt fyrir gangandi vegfarendur. Til að fá grænt gönguljós þarf að ýta á hnappinn við gangbrautina. Lundarskóli hefur verið upplýstur um breytinguna og mun koma upplýsingunum áleiðis til nemenda.

Reynt verður að lágmarka þann tíma sem slökkt verður á ljósunum meðan á vinnu stendur. Þó má búast við að ljósin verði óvirk í einhverja klukkutíma á gatnamótum Glerárgötu og Strandgötu annars vegar og Þingvallastrætis og Dalsbrautar hins vegar.

Vegfarendur eru beðnir um að sýna aðgát á meðan á framkvæmdum stendur. Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þær kunna að valda.

Frá  þessu segir á samfélagsmiðlum Akureyrarbæjar.

Nýjast