Söngurinn er stóra áhugamálið

Ólafur Árni Haraldsson, sigurvegari Sturtuhaussins skólaárið 2026-2027    Mynd vma.is
Ólafur Árni Haraldsson, sigurvegari Sturtuhaussins skólaárið 2026-2027 Mynd vma.is

Ólafur Árni Haraldsson kom, sá og sigraði í Sturtuhausnum – söngkeppni VMA sl. fimmtudagskvöld. Hann söng hið sígilda og gullfallega lag My way, sem óhætt er að segja að hafi verið einskonar einkennislag Frank Sinatra.

Svona hljómaði My way í útfærslu Ólafs Árna í Sturtuhausnum.

En hver er Ólafur Árni? Hann er frá Litla-Árskógssandi og gekk því í grunnskóla í Árskógi og fór síðan í efri bekki grunnskólans á Dalvík. Í haust lá leiðin síðan í hársnyrtiiðn í VMA. Hann segist ekki hafa átt sér þann draum að verða hársnyrtir en þegar kom að því að taka endanlega ákvörðun um hvað hann vildi læra í framhaldsskóla hafi hársnyrtiiðn orðið fyrir valinu og námið fari bara vel af stað.

Til hliðar við námið segir Ólafur Árni það ekkert launungarmál að söngurinn sé hans aðal áhugamál. Ólafur fékk ungur að árum áhuga á söng og fékk í mörg ár tilsögn frá kennurunum við Tónlistarskólann á Tröllaskaga, fyrst var hann hjá Mathias Julien Spoerry frá 1. og upp í 6. bekk grunnskóla og síðan sótti hann tíma hjá Kristjönu Arngrímsdóttur. Nú sækir hann vikulega söngtíma hjá Erlu Mist Magnúsdóttur kennara við Tónlistarskólann á Akureyri.

Hann neitar því ekki að það hafi verið obbolítið stressandi til að byrja með að stíga á svið í Gryfjunni en stressið hafi fljótlega vikið þegar hann var kominn af stað í söngnum. Ólafur Árni er þó nokkuð sviðsvanur því árið 2023 tók hann þátt í þættinum Jólastjarnan á Rúv og söng þar lagið Heim um jólin. Og í mars sl. lék hann í uppsetningu Leikfélags Dalvíkur á Ævintýrabókinni eftir Pétur Eggerz.

Ólafur Árni segist vera nokkurn veginn alæta á tónlist og ástæðan fyrir því að hann hafi valið að syngja My way í Sturtuhausnum hafi einfaldlega verið sú að hann hafi verið búinn að syngja það um skeið og kunni það því nokkuð vel.

Næsta stóra verkefni Ólafs Árna í söngnum verður á vorönn þegar hann tekur þátt í uppsetningu Menningarfélags Akureyrar á Skilaboðskjóðunni. Frumsýnt verður í febrúar. Æfingar hefjast síðar í þessari viku. Ólafur segist að vonum vera afar spenntur fyrir þessu verkefni. Honum hafi verið bent á þann möguleika að sækja um að taka þátt í þessu verkefni og hann hafi verið einn af þeim heppnu sem fékk hlutverk í sýningunni.

Og svona í lokin nokkrir fróðleiksmolar um My way, lagið sem Ólafur Árni söng svo vel í Sturtuhausnum. Bandaríski söngvarinn Frank Sinatra (1915-1998) gerði sannarlega þetta lag ódauðlegt með mögnuðum flutningi sínum á því árið 1969. Sinatra átti hins vegar engan heiður af laginu að öðru leyti en því að hann flutti það óaðfinnanlega. Upphaflega er lagið franskt, hét Comme d'habitude og var fyrst hljóðritað árið 1967. Ári síðar heyrði kanadíski söngvarinn Paul Anka lagið og hreifst af því. Hann fékk leyfi til þess að gera enskan texta við lagið. Upphaflegi franski texti lagsins fjallaði um ástarsamband sem var komið á leiðarenda en enski texti Anka segir frá manni sem horfir til baka yfir lífshlaup sitt, viðurkennir ákveðin mistök en sér þó ekki eftir að hafa farið sínar leiðir í lífinu. Paul Anka var án efa með Frank Sinatra í huga þegar hann gerði þennan enska texta. Sinatra hljóðritaði lagið í árslok 1968 og það kom út á hljómplötu árið eftir. Sagan segir að lengi vel hafi Sinatra ekki líkað allskostar við lagið og textann, honum hafi fundist sem sögupersónan væri full sjálfhverf og montin. En hvað um það, lagið fylgdi Sinatra allt til enda og varð tvímælalaust eitt af hans allra þekktustu lögum.

Frá þessu segir á vma.is

Nýjast