Landkönnuðir frá öllum heimshornum safnast saman á Húsavík

12. Landkönnunarhátíðin á Húsavík hefst í dag, miðvikudaginn 18. nóvember, með fimm daga dagskrá kvikmynda, vísinda, lista og ævintýra.

Landkönnuðir, kvikmyndagerðarfólk, vísindamenn og listamenn víðs vegar að úr heiminum eru nú að koma til Húsavíkur þar sem Landkönnunarhátíðin (Explorers Festival) verður haldin í tólfta sinn dagana 18. til 22. nóvember. Hátíðin er haldin af Könnunarsafninu á Húsavík og hefur frá árinu 2015 verið vettvangur fyrir fólk sem fæst við landkönnun, vísindi og ævintýri á ólíkum sviðum.
Yfir 30 kvikmyndir eru á dagskrá kvikmyndahluta hátíðarinnar í ár, auk fyrirlestra, listasýninga, vettvangsferða og sérstakra viðburða þar sem gestir fá tækifæri til að kynnast landkönnun á sjó, landi og úti í geimnum.
Frá Húsavík út í geiminn

Yfirskrift hátíðarinnar í ár er LIGHTDAY og vísar til þess merka áfanga að geimfarið Voyager 1, sem skotið var á loft árið 1977, hefur ferðast svo langt frá jörðu að fjarlægðin samsvarar þeirri vegalengd sem ljósið fer á einum sólarhring.
Hátíðin verður sett klukkan 10:16 á miðvikudagsmorgun með dagskrá helgaðri Voyager og sögu geimkönnunar. Þar mun breski vísindablaðamaðurinn og kvikmyndagerðarkonan Tira Shubart fjalla um sögu geimfarsins.


Kvikmyndir um landkönnun og ævintýri

Kvikmyndahátíðin er stór hluti dagskrárinnar og þar verða sýndar 36 heimildarmyndir frá 15 löndum. Viðfangsefnin eru fjölbreytt, allt frá lífinu á afskekktum norðurslóðum og könnun heimshafanna til fjallamennsku, náttúruverndar og geimferða.
Meðal mynda á dagskrá eru Ice Women, How We Survive Diomede, Secret Rivers of the Nakanai, Apollo 1 og íslenska kvikmyndin Undir ísnum.
Sýningar fara fram í nokkrum sölum á Húsavík dagana 18. til 21. nóvember og verða verðlaunamyndir hátíðarinnar sýndar aftur að henni lokinni.
Ungar konur kynnast jarðfræði og geimvísindum á Íslandi

Sérstakur hluti hátíðarinnar er GEOSPACE-verkefnið, sem nú fer fram í fimmta sinn. Fjórar ungar konur frá Bandaríkjunum og Mexíkó heimsækja Ísland til að kynnast jarðfræði, geimvísindum og náttúru landsins. Í ár taka einnig tvær stúlkur frá Húsavík þátt í verkefninu.
Hópurinn heimsækir meðal annars nemendur Borgarhólsskóla, tekur þátt í vinnustofu hjá Fab Lab á Húsavík og fer í jarðfræðileiðangur um Þeistareyki og Mývatnssveit. Sú ferð byggir á þeirri einstöku sögu svæðisins að bandarískir Apollo-geimfarar æfðu þar fyrir tunglferðir sínar á sjöunda áratug síðustu aldar og aðstoðuðu geimfararnir við gerð æfingar plansins.
Á föstudag munu þátttakendur kynna verkefni sín og Sophia Crowder sem var í nemendahóp hátíðarinnar árið 2022 segja frá störfum sínum við Nancy Grace Roman-geimsjónauka NASA.


Listir, ljóð og framtíð geimkönnunar

Á hátíðinni verður einnig fjallað um tengsl norðurslóða og geimkönnunar. Tira Shubart og Rowan Wilson ræða meðal annars hvað alþjóðlegt samstarf og stjórnun á norðurslóðum getur kennt okkur um framtíð geimrannsókna.
Á föstudag verður opnuð myndlistarsýning í Safnahúsinu á Húsavík með verkum eftir Morgan Doyle, Bryndísi Björnsdóttur og Örlyg Örlygsson. Á dagskránni er jafnframt sérstakur viðburður um ljóðlist og landkönnun, þar sem listamenn, kvikmyndagerðarfólk og landkönnuðir deila ljóðum sínum.

Landkönnunarverðlaun Leifs Eiríkssonar afhent á laugardag

Einn af hápunktum hátíðarinnar verður hátíðarkvöldverður á laugardagskvöld, 21. nóvember, þar sem Landkönnunarverðlaun Leifs Eiríkssonar verða afhent.
Verðlaunin eru veitt einstaklingum sem hafa skarað fram úr á sviði landkönnunar, vísinda og miðlunar á sögu landkönnunar. Meðal þeirra sem hlotið hafa verðlaunin á fyrri árum eru geimfararnir Bill Anders og spænska fjallgöngukonan Edurne Pasaban.
Á hátíðarkvöldinu mun Michelle Lucas, stofnandi bandarísku samtakanna Higher Orbits, einnig flytja erindi um mikilvægi vísinda og geimkönnunar fyrir komandi kynslóðir.

Hátíðinni lýkur á sunnudag með meðal annars hvalaskoðunarferð með Friends of Moby Dick á Skjálfandaflóa.

Dagskrá Landkönnunarhátíðar er aðgengileg á íslensku og ensku á vefnum explorersfest.com.

Nýjast