Eyrún Lilja Aradóttir er Ungskáld 2026

Verðlaun í árlegri ritlistakeppni Ungskálda voru veitt við hátíðlega athöfn á Amtsbókasafninu í gær, á degi íslenskrar tungu. Fyrstu verðlaun hlaut Eyrún Lilja Aradóttir fyrir verkið “Sturtan”, í öðru sæti var Katrín Día Gunnlaugsdóttir fyrir verkið “Miðbæjar-Darri”, en Katrín Día var einnig í þriðja sæti fyrir verkið “Þriðja augað”.

Þess má til gamans geta að þetta er í annað sinn sem Eyrún Lilja er í fyrsta sæti í ritlistakeppni Ungskálda og í þriðja sinn sem hún er í verðlaunasæti. Hún vann einnig keppnina árið 2023 og árið 2025 varð hún í þriðja sæti.

Í keppnina í ár bárust 30 verk frá 15 höfundum og voru þau einstaklega fjölbreytt. Öll verkin voru nafnlaus þegar dómnefnd fékk þau í hendur, til þess að fyllsta hlutleysis væri gætt.

Dómnefnd ársins skipuðu þau Sara Bjarnason, skipuleggjandi Kveldúlfs tónlistarhátíðar og verkefnastjóri Gjörningahátíðarinnar A!, Kött Grá Pjé, tónlistarmaður, textasmiður og rithöfundur, og Rannveig Karlsdóttir, þjóðfræðingur og kennari.

Að Ungskáldaverkefninu standa Amtsbókasafnið á Akureyri, Ungmennahúsið í Rósenborg, Verkmenntaskólinn á Akureyri, Menntaskólinn á Akureyri og Atvinnuvinnu-, markaðs- og menningarteymi Akureyrarbæjar. Ungskáldaverkefnið er styrkt af Uppbyggingarsjóði Norðurlands eystra og Akureyrarbæ.

Frá þessu segir á vef Akureyrarbæjar

Nýjast