Bæjarstjórn Akureyrar samþykkti á fundi sínum í gær með níu atkvæðum tillögu um álagningu fasteignaskatta fyrir árið 2027. Álagningarhlutfallið verður 0,28% í A-flokki, 1,32% í B-flokki og 1,59% í C-flokki. Bæjarráð hafði áður samþykkt tillöguna og vísað henni til bæjarstjórnar.
Álagningarhlutfallið verður óbreytt hjá einstaklingum en lækkar hjá fyrirtækjum. Tveir bæjarfulltrúar úr minnihlutanum Hlynur Jóhannsson, M-lista, og Þórhallur Jónsson, A-lista, gagnrýndu að ekki hafi verið gengið lengra í skattalækkunum og sögðu það vonbrigði að kosningaloforð meirihlutans um lækkun fasteignaskatta skili sér ekki til einstaklinga.
Meirihlutinn segir lækkunina styðja atvinnulífið
Í bókun meirihlutans, L-lista, Sjálfstæðisflokks og Framsóknar, segir að í meirihlutasamningi sé lögð skýr áhersla á að styrkja atvinnulífið á Akureyri, halda aftur af álögum og nýta það svigrúm sem skapast til lækkunar skatta og gjalda.
Með lækkun á álagningarhlutfalli fasteignaskatts í C-flokki sé verið að bæta rekstrarumhverfi fyrirtækja á Akureyri. Lækkunin styðji jafnframt við aðrar aðgerðir meirihlutans, meðal annars frestun á innheimtu gatnagerðargjalda og átak í fjölgun atvinnulóða í bænum.
Gagnrýna að skattar lækki ekki hjá einstaklingum
Hlynur Jóhannsson, M-lista, og Þórhallur Jónsson, A-lista, gagnrýna að fasteignaskattur hjá einstaklingum lækki ekki og að lækkun hjá fyrirtækjum sé aðeins 1,24%.
Í bókun þeirra segir að mikil vonbrigði séu að sjá ekki lækkun á fasteignaskatti hjá einstaklingum, í ljósi þess að allir flokkar sem sitja í meirihlutanum hafi lofað kjósendum slíku Þeir segja ótrúlegt að þessi kosningaloforð og helstu áherslumál skuli ekki koma fram strax í fyrstu fjárhagsáætlun nýs meirihluta.