Samningar undirritaðir vegna fyrirhugaðs gagnavers á Bakka

Tom Frost frá EyrieDC og Bergþór Bjarnason, sveitarstjóri Norðurþings, við undirritun samninga.
Tom Frost frá EyrieDC og Bergþór Bjarnason, sveitarstjóri Norðurþings, við undirritun samninga.

Norðurþing og EyrieDC hafa undirritað lóðarleigusamning vegna fyrirhugaðs gagnavers á iðnaðarsvæðinu á Bakka við Húsavík. Samningurinn er til 50 ára, með möguleika á framlengingu, og tekur til 8,2 hektara lóðar. Sveitarstjórn Norðurþings samþykkti lóðarúthlutunina samhljóða 12. nóvember. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Norðurþings

Samningurinn er ein af forsendum fyrir áframhaldandi undirbúningi verkefnisins og er gildistaka hans háð tilteknum skilyrðum. EyrieDC áformar að byggja gagnaverið upp í áföngum og gerir núverandi áætlun félagsins ráð fyrir allt að 120 MW heildarafkastagetu.

Samhliða lóðarleigusamningnum undirrituðu aðilar samning um samstarf við nærsamfélagið. Samkvæmt honum mun EyrieDC leggja árlegt framlag í samfélagssjóð þegar rekstur gagnaversins hefst. Sjóðnum er ætlað að styðja við verkefni á sviði meðal annars menntunar, atvinnulífs, æskulýðs-, íþrótta- og menningarstarfs, umhverfismála og innviða í Norðurþingi.

„Það er ánægjulegt að þessi áfangi sé í höfn eftir þá vinnu sem átt hefur sér stað undanfarna mánuði. Fyrir Norðurþing skiptir máli að áframhaldandi uppbygging á Bakka geti skapað verðmæti og tækifæri fyrir samfélagið til lengri tíma,“ segir Bergþór Bjarnason, sveitarstjóri Norðurþings.

EyrieDC stefnir samkvæmt núverandi áætlunum að því að hefja framkvæmdir árið 2027 og taka fyrsta áfanga í notkun árið 2028.

Nýjast