Jól í skókassa hjá Álfasteini

Pakkarnir komnir á brett og tilbúnir til flutnings   Myndir  horgarsveit.is
Pakkarnir komnir á brett og tilbúnir til flutnings Myndir horgarsveit.is

Það ríkti sannkölluð jólagleði í Heilsuleikskólanum Álfasteini í byrjun nóvember þegar starfsfólkið tók höndum saman og útbjó 33 gjafakassa fyrir verkefnið Jól í skókassa.

Við pökkunina var hugsað vel um umhverfið og endurnýtingu, enda er Álfasteinn Grænfánaleikskóli. Ýmsir hlutir sem aðrir voru hættir að nota fengu nýtt líf og voru nýttir til að gera kassana sem fallegasta og innihaldsríkasta.

Unnið að pökkun

Það er fallegt til þess að hugsa að þessir 33 kassar muni færa börnum gleði og hlýju um jólin. Með framtakinu sýnir starfsfólk Álfasteins að litlar gjörðir geta haft mikla þýðingu og að það er hægt að láta gott af sér leiða með samkennd, hugmyndaauðgi og umhyggju fyrir umhverfinu.

Frá þessu segir á vef Hörgársveitar

Nýjast