Góð staða í birgðageymum hitaveitunnar

Staðan í birgðageymum hitaveitunnar á Akureyri er nú orðin góð og komin vel upp fyrir öryggismörk. Samstillt átak starfsfólks Norðurorku, stórnotenda og almennings skilaði góðum árangri.

Staðan komst í gott jafnvægi þótt hún væri vel fyrir neðan öryggismörk, en eftir ákall Norðurorku til notenda stóð hún í stað og hækkaði jafnvel örlítið. Norðurorka þakkar viðskiptavinum, jafnt almenningi sem stórnotendum, fyrir góð viðbrögð. Sömuleiðis er starfsfólki þakkað fyrir skjót viðbrögð við stöðunni, en öll lögðust þau á eitt við að tryggja samfélaginu heitt vatn, líkt og allt árið um kring.

Miklu munaði um að öflug borhola á Laugalandi komst aftur í vinnslu í gærkvöldi eftir langvinna bilun. Viðgerðum á henni var flýtt eins og kostur var og staðan í geymunum því gjörbreytt frá því sem var í upphafi vikunnar.

Olíuketillinn við Mímisbraut var gangsettur sem kunnugt er, en slíkt er alla jafna algjört neyðarúrræði og með því síðasta sem er gert eftir að búið er að skerða afhendingu til allra stórnotenda. Þar á meðal eru sundlaugar bæjarins. Í þessu tilviki var ákveðið að ræsa ketilinn áður en farið var í að skerða afhendingu til sundlauga, þar sem kominn var tími á að prófa hann. Slíkar prófanir eru gerðar með reglulegu millibili og þótti því tilvalið að ræsa hann í ljósi bágrar stöðu heita vatnsins í bænum, til að orkan yrði nýtt á sem allra bestan hátt. Sú aðgerð átti drjúgan þátt í því að staðan hélst í jafnvægi og fór ekki neðar.

Eins og alla aðra daga ársins eru notendur beðnir um að hugsa vel um nýtingu á heitu vatni á heimilum og vinnustöðum. Jarðhitavatn er vissulega endurnýjanleg auðlind en takmörk eru fyrir því hversu miklu vatni er hægt að ná upp. Því þarf að gæta þess að heitu vatni sé ekki sóað, að ofnakerfi séu rétt stillt, að snjóbræðslur nýti vatnið á sem bestan hátt og að ekki sé látið renna í heita potta þegar mjög kalt er í veðri.

Frá þessu segir í tilkynningu frá Norðurorku

Nýjast