Freyvangsleikhúsið frumsýnir aðventuverk Gleðin leynist oft í litlu hlutunum

Sólveig María Svana Haraldsdóttir í hlutverki Marísólar    Myndir  Freyvangsleikhúsið
Sólveig María Svana Haraldsdóttir í hlutverki Marísólar Myndir Freyvangsleikhúsið

„Sagan minnir okkur á að gleðin leynist oft í litlu hlutunum, í því sem við gerum fyrir hvert annað og því sem kemur frá hjartanu,“ segir Jóhanna S. Ingólfsdóttir höfundur Marísól og leitin að gleðinni. Verkið er glænýtt og verður frumsýnt hjá Freyvangsleikhúsinu annað kvöld föstudagkvöldið 20. nóvember. Verkið verður sýnt næstu helgar.

Jóhanna leikstýrir einnig en og tónlistina samdi Eiríkur Bóasson sérstaklega fyrir þetta verk. Hann féll frá nú fyrir skömmu. Þetta er í fimmta sinn sem Freyvangsleikhúsið setur upp aðventuverk fyrir yngri kynslóðina og er hefðin orðin rík. „Það þykir mörgum ómissandi að fara með börnin í leikhús fyrir jólin,“ segir hún og bætir við að aðventuverkin hafi notið vinsælda.

Marísol með bangsanum Viktori sem Hallur Örn Guðjónsson leikur

Verkið um Marísól er hugljúf jólasaga um tíu ára stúlku sem kvíðir komandi jólum þar sem faðir hennar, sem er sjómaður, þarf að vinna yfir hátíðarnar. Á Þorláksmessukvöld lifnar uppáhaldsbangsinn hennar, Viktor, við og tekur hana með í ævintýralegt ferðalag þar sem þau leita að gleðinni. Á leiðinni hitta þau ólíkar persónur sem allar hafa sína sýn á hvað raunveruleg gleði er,

Nýjast