Lóð við Naustgötu gæti hentað Brekkukoti

Brekkukot, sem nú er starfrækt að Þórunnarstræti 99 (gamla Húsmæðraskólanum)
Brekkukot, sem nú er starfrækt að Þórunnarstræti 99 (gamla Húsmæðraskólanum)

Skipulagsráð Akureyrarbæjar hefur bent á lóð við Naustagötu 7 þar sem reisa mætti framtíðarhúsnæði fyrir skammtímavistunina Brekkukot. Óskaði ráðið eftir umsögn velferðarráðs um nýja staðsetningu fyrir starfsemina.

Brekkukot, sem nú er starfrækt að Þórunnarstræti 99, hefur um árabil verið mikilvægt úrræði fyrir börn og fjölskyldur sem nýta skammtímavistun. Þörf fyrir framtíðarlausn húsnæðismála starfseminnar hefur verið til umræðu um nokkurt skeið og hafa stjórnvöld skoðað ýmsa kosti vegna áframhaldandi uppbyggingar þjónustunnar.

Nýjast