Alþjóðlega skákmótið Sel Hótel Mývatn/Mývatn Öl Open hófst í Skjólbrekku í kvöld og stendur fram á sunnudag. Katrín Sigurjónsdóttir lék fyrsta leikinn í skák þeirra Smára Sigurðssonar og enska stórmeistarans Simon Conquest.
Sjá einnig: „Allir vilja eiga séns á því að tefla við stórmeistara“
Það er Skákfélagið Goðinn sem stendur að mótinu en meðal keppenda eru sterkir innlendir og erlendir stórmeistarar auk fjölmargra áhugamanna.
Eins og fram kom í viðtali Vikublaðsins við Hermann Aðalsteinsson fyrr í vikunni hefur mótið vakið töluverðan áhuga erlendis og þurftu skipuleggjendur jafnvel að vísa nokkrum erlendum stórmeisturum frá.
Allar skákir mótsins eru sýndar í beinni útsendingu á netinu.
Hægt er að fylgjast með öllum skákum mótsins í beinni útsendingu hér.