Aðventan er handan við hornið og fyrir margar er fátt betra þegar hún gengur í garð en að bregða sér á jólamarkað Kvenfélags Svalbarðsstrandarhrepps og komast þannig í gott jólaskap. Markaðurinn er árlegur og ómissandi fyrir marga að sækja í upphafi aðventu.
Jólamarkaðurinn verður haldinn laugardaginn 21. nóvember frá kl. 12til 16. Í ár eru liðin 20 ár frá því markaðurinn var fyrst haldinn, en þá tóku 10 aðilar þátt. Nú eru þátttakendurnir orðnir tæplega 40 og allt stefnir í sannkallaða jólastemningu.
Á markaðnum verður að finna fjölbreytt úrval af fallegum vörum, notalegt jólakaffihús og vinsælu lukkupakkana fyrir börnin. Það verður eitthvað við allra hæfi og tilvalið að gera sér glaðan dag með fjölskyldu og vinum í aðdraganda jólanna.
Kvenfélagskonur hlakka til að taka á móti gestum og bjóða upp á góða og notalega stemmningu.