„Það fer mjög vel um okkur hér,“ segir Hanna Vigdís Jóhannesdóttir hjá Blóðbankanum á Akureyri en hann hefur flutt starfsemi sína í nýtt og rúmbetra húsnæði innan Glerártorgs. Er nú staðdettur á annarri hæð við norðurinngang verslunarmiðstöðvarinnar og er gengið inn á milli verslana Blush og Skor. Með flutningnum hefur aðstaða fyrir bæði starfsfólk og blóðgjafa batnað verulega. Helsta áskorun sem Blóðbankinn stendur frammi fyrir er fækkun í hópi þeirra sem gefa blóð.
Nýja húsnæðið var tekið í notkun síðastliðinn föstudag. Hanna Vigdís segir að breytingin muni bæta þjónustuna til muna. „Nýja rýmið er mun hentugra fyrir starfsemina. Hér höfum við tvö viðtalsherbergi, sérstaka aðstöðu fyrir fundi og símtöl við blóðgjafa, vinnuherbergi og kaffistofu fyrir starfsfólkið. Aðstaðan er rúmbetri en áður var og gefur okkur meiri möguleika til að sinna fólki á þægilegan og faglegan hátt,“ segir Hanna.
Hönnun húsnæðisins var í höndum Arkís og að sögn Hönnu hefur tekist afar vel til við útfærsluna. Flutningur Blóðbankans tengist því að Læknastofur Akureyrar sem áður voru nágrannar Blóðbankans hafi hug á að stækka við sig og munu fá það pláss sem hann hafði til umráða undir sína starfsemi.

1.500 til 2.000 blóðgjafar á ári
Á hverju ári koma að meðaltali 1.500 til 2.000 blóðgjafar í starfsstöðina á Glerártorgi. Þá hefur starfsemin einnig eflst með tilkomu blóðgjafabílsins Bjargar. Hann kom til Akureyrar á liðnu vori en verður tekinn í fulla notkun eftir áramót. Þá verður hægt að aka um norðanvert landið og safna blóði í heimbyggð blóðgjafanna. Einnig skapast möguleiki á að aka að stórum vinnustöðum þannig að fólk geti brugðið sér frá í skamma stund og gefið blóð. Þannig þarf ekki að taka langan tíma frá vinnu við að sinna því þjóðþrifaverkefni.
Blóðgjöfum fækkar en þörfin eykst
Þrátt fyrir bætta aðstöðu er staðan í blóðsöfnun áhyggjuefni. Hanna segir að blóðgjöfum hafi almennt farið fækkandi á undanförnum árum og það gildi um heim allan.
„Þeim sem gefa blóð hefur almennt verið að fækka og það er ekki góð þróun. Við þurfum ávallt að eiga nægar birgðir og vera í stakk búin til að mæta þörfum heilbrigðiskerfisins. Um leið hækkar meðalaldur þjóðarinnar og þar með eykst þörfin fyrir blóðhluta. Þess vegna er mikilvægt að fleiri taki þátt og kanni hvort þeir geti orðið blóðgjafar,“ segir hún. Það verði því æ mikilvægara að fá yngra fólk til liðs við bankann svo hægt sé að tryggja öruggar blóðbirgðir til framtíðar.

Þessir tveir, Gestur og Hermann litu inn í opið hús Blóðbankans á mánudag og flettu gömlum myndaalbúmum
Konur í minnihluta
Sérstök áhersla hefur verið lögð á að fjölga konum í hópi blóðgjafa. Konur eru enn í minnihluta þeirra sem gefa blóð hér á landi. „Það er lífseig mýta að konur megi ekki gefa blóð, en því fer fjarri. Margar konur eru fullfærar um að gefa blóð og við viljum endilega sjá fleiri þeirra ganga til liðs við okkur,“ segir Hanna.
Markmið Blóðbankans er að halda áfram að fjölga virkum blóðgjöfum samhliða aukinni þjónustu. Með betra aðgengi og sýnilegri starfsemi á Glerártorgi vonast Blóðbankinn til að ná til fleiri íbúa og fjölga virkum blóðgjöfum á Norðurlandi. „Að gefa blóð er eitt mikilvægasta samfélagsverkefni sem hver og einn getur tekið þátt í,“ segir hún.
