Sumarvistun yngstu barna yfir sumarið: áskorun sem við leysum í samvinnu
Á Akureyri standa margar fjölskyldur frammi fyrir verulegri áskorun á hverju sumri þegar sumarlokanir leikskóla standa yfir og fjölskyldur þurfa að reyna með einhverju móti að samræma atvinnu og fjölskyldulíf. Þetta fyrirkomulag reynir sérstaklega á þá sem starfa í framlínustörfum og hafa takmarkað um það að segja hvenær þeir taka sumarfrí.