
Færði Lystigarðinum 1 milljón króna að gjöf
Reynir Gretarsson sem rekur veitingastaðinn Lyst í Lystigarði Akureyrar færði morgun Akureyrarbæ 1 milljón króna að gjöf sem hann vonar að nýtist vel í rekstri garðsins.
Reynir Gretarsson sem rekur veitingastaðinn Lyst í Lystigarði Akureyrar færði morgun Akureyrarbæ 1 milljón króna að gjöf sem hann vonar að nýtist vel í rekstri garðsins.
GLUGGINN í Hafnarstræti 88, vinnustofu myndlistarkonunnar Brynju Harðardóttur Tveiten sýnir þessa dagana heklaðar og prjónaðar hárkollur og húfur. Sýningin er sett upp í tilefni af Bleikum október, árlegu árveknis- og fjáröflunarátaki Krabbameinsfélags Íslands gegn krabbameinum hjá konum.
Í eldhúsi SAk er kappkostað við að halda matarsóun í algjöru lágmarki það er heimasíða SAk sem segir frá.
Á 38. þingi Alþýðusambands Norðurlands sem fram fór í síðustu viku var samþykkt samhljóða að færa Kvennaathvarfinu á Akureyri kr. 500.000 til starfseminnar.
Þriðjudaginn 8. október kl. 17-17.40 heldur leikstjórinn og listakonan Snæfríður Sól Gunnarsdóttir Þriðjudagsfyrirlestur undir yfirskriftinni Vega og meta, mega og veta.
Aðgangur er ókeypis.
Það gladdi alla Norðlendinga þegar karlalið KA varð Bikarmeistari í knattspyrnu í fyrsta skipti í sögu félagsins. KA var vel að þessum sigri komið, gleði og stolt þeirra einlægt. En við Þingeyingar, sem erum ekki þekktir fyrir mikla hógværð, viljum benda á staðreyndir sem tengjast þessu afreki
Klassíska hljómsveitin Stúlknabandið leggur land undir fót 12.-13. október næstkomandi og er stefnan tekin á Norðurlandið. Stúlknabandið mun spila tónlist, annars vegar í Mývatnssveit og hins vegar á Akureyri.
Meðalvigtin það sem af er sláturtíð hjá Kjarnafæði Norðlenska á Húsavík er 16,87 kg á móti 17,10 kg á sama tíma í fyrra.
„Haustlitir á birki virðast koma hægt þetta árið og getur bæði spilað inn í faraldur skaðvalda og svalt sumar,“ segir Pétur Halldórsson kynningarstjóri Lands og skóga. Birki á svæðinu er illa útleikið eftir tvo nýlega skaðvalda sem herjuðu sérstaklega illa á það hér um slóðir í sumar.
Í dag laugardag eru ráðgerðir viðburðir um allan heim til að minnast þess og mótmæla að þjóðarmorð hafa átt sér stað á G A Z A í heilt ár.
Viðamiklar framkvæmdir hafa staðið yfir undanfarnar vikur í Hrafnagilshverfi í Eyjafjarðarsveit þar sem breyta þurfti lagnaleiðum, koma fyrir nýjum lögnum/strengjum, afleggja og endurnýja eftir þörfum í nokkuð flókinni framkvæmd þar sem samræma hefur þurft vinnu nokkurs fjölda veitu- og fjarskiptafyrirtækja.
Heimasíða Samherja segir frá því að nemendum í vélstjórn við Verkmenntaskólann á Akureyri gafst nýverið kostur á að fylgjast með endurbótum á sveifarási frystitogarans Snæfells EA, sem er í eigu Samherja. Um er að ræða sérhæft verkefni, sem krefst mikillar nákvæmni og voru erlendir sérfræðingar fengnir til landsins í tengslum við vélarupptekt og slípun á sveifarási.
Gabríel Ingimarsson snýr aftur í heimahagana og tekur við stöðu rekstrarstjóra Hríseyjarbúðarinnar eftir nokkurra ára fjarveru með viðkomu í Reykjavík, Laugum í Reykjadal og Brussel.
„Starf Zontaklúbbsins Þórunnar hyrnu er í nokkuð föstum skorðum. Við hittumst einu sinni í mánuði frá september og fram í maí á fundum þar sem tekin eru fyrir málefni sem tengjast Zontastarfinu, við njótum þess að vera saman og gleðjast, það er alltaf mikil gleði sem fylgir okkar samveru,“ segir Sesselja Sigurðardóttir talsmaður Zontaklúbbsins Þórunnar hyrnu og fyrrverandi svæðisstjóri Zonta á Íslandi. Klúbburinn heldur upp á 40 ára afmæli sitt í Deiglunni næstkomandi laugardag, 5. október kl. 15. Þar verður afmælisboð og efnt til listaverkauppboðs. Bæjarbúum er boðið að koma og fagna með Zontakonum.
Hollvinir komu á dögunum færandi hendi með nýjar speglunarstæður á skurðstofur. Þeir létu nú ekki þar við liggja og færðu speglunardeild þvottavélar til handa speglunartækjum.
„Fiskþurrkun Samherja að Laugum er fjölmennur vinnustaður í sveitarfélaginu og lýsir sveitarstjórn þungum áhyggjum af stöðu mála, þar sem óljóst er um framtíð starfanna,“ segir í bókun sem Jóna Björg Hlöðversdóttir lagði fram á fundi sveitarstjórnar Þingeyjarsveitar. Þurrkun fiskafurða á Laugum var þar til umræðu.
Hafið smá þolinmæði með mér. Mig langar til að byrja á lítilli sögu af þeim skáldbræðrum og vinum, skáldinu á Sandi, Guðmundi Friðjónssyni, og þjóðskáldinu, Matthíasi Jochumssyni. Eitt sinn sem oftar leit Guðmundur við hjá vini sínum á Sigurhæðum. Þeir höfðu um margt að spjalla, báðir skrafhreifnir og áhugasamir um menn og málefni. Loks kemur þó að kveðjustund og þar sem þeir eru komnir út á tröppu spyr Guðmundur skyndilega: „Geturðu sagt mér, Sigurhæðabúi, hvernig ég muni geta haldið mér andlega ungum til æviloka?“
Matthías svaraði samstundis: „Það get ég sagt þér, minn elskulegi, með því að skipta oft um skoðun.“
KA og Þór verða í vetur með æfingar fyrir 6 - 16 ára börn og unglinga með sérþarfir, æfingarnar fara fram í Íþróttahúsi Naustaskóla og hefjast þær n.k. sunnudag kl 11.
Íþróttabærinn Akureyri býður uppá fjölskyldutíma í Íþróttahöllinni á völdum sunnudögum fram í desember.
„Markmiðið er bleikur fjörður,“ segir Vilborg Jóhannsdóttir kaupmaður í Centró og forsvarsmaður Dekurdaga á Akureyri. Sala á bleiku slaufunni stendur sem hæst um þessar mundir og gengur vel. Allur ágóði af sölunni rennur að vanda til Krabbameinsfélags Akureyrar og nágrennis.
Heilbrigðisnefnd Norðurlands eystra lýsir yfir vonbrigðum með að áform fyrirtækisins Skútabergs um tiltekt á athafnasvæði sínu á Moldhaugnahálsi hafi ekki gengið eftir.
Fyrirtækið Auto ehf. Setbergi Svalbarðsströnd fékk frest til 1. október til að ljúka tiltekt á lóð sinni. Verði ekki brugðist með fullnægandi hætti við tilmælum um tiltekt íhugar Heilbrigðisnefnd Norðurlands eystra að beita dagsektum þar til úr verður bætt.
Eins og lesendur eflaust muna sagði Vikublaðið frá því á dögunum að fyrirhugað afnám á tollafrelsi sem svokölluð leiðangursskip hafa notið hér við land gæti haft afar neikvæðar afleiðingar fyrir landsbyggðina.
Heilbrigðisstofnun Norðurlands, HSN á 10 ára starfsafmæli í dag, en stofnunin varð til við sameiningu Heilbrigðisstofnunar Þingeyinga, Heilsugæslunnar á Akureyri, Heilsugæslustöðvarinnar á Dalvík, Heilbrigðisstofnunar Fjallabyggðar, Heilbrigðisstofnunar Sauðárkróks og Heilbrigðisstofnunar Blönduóss, þann 1. október 2014.
Björgunarþyrlan TF-LIF er nú orðin sýningarhæf og var þeim áfanga fagnað hjá Flugsafni Íslands á Akureyri og Öldungaráði Landhelgisgæslunnar.