
Slæmt vor mjög líklega orsök lægri meðalvigtar
Meðalvigtin það sem af er sláturtíð hjá Kjarnafæði Norðlenska á Húsavík er 16,87 kg á móti 17,10 kg á sama tíma í fyrra.
Meðalvigtin það sem af er sláturtíð hjá Kjarnafæði Norðlenska á Húsavík er 16,87 kg á móti 17,10 kg á sama tíma í fyrra.
„Haustlitir á birki virðast koma hægt þetta árið og getur bæði spilað inn í faraldur skaðvalda og svalt sumar,“ segir Pétur Halldórsson kynningarstjóri Lands og skóga. Birki á svæðinu er illa útleikið eftir tvo nýlega skaðvalda sem herjuðu sérstaklega illa á það hér um slóðir í sumar.
Í dag laugardag eru ráðgerðir viðburðir um allan heim til að minnast þess og mótmæla að þjóðarmorð hafa átt sér stað á G A Z A í heilt ár.
Viðamiklar framkvæmdir hafa staðið yfir undanfarnar vikur í Hrafnagilshverfi í Eyjafjarðarsveit þar sem breyta þurfti lagnaleiðum, koma fyrir nýjum lögnum/strengjum, afleggja og endurnýja eftir þörfum í nokkuð flókinni framkvæmd þar sem samræma hefur þurft vinnu nokkurs fjölda veitu- og fjarskiptafyrirtækja.
Heimasíða Samherja segir frá því að nemendum í vélstjórn við Verkmenntaskólann á Akureyri gafst nýverið kostur á að fylgjast með endurbótum á sveifarási frystitogarans Snæfells EA, sem er í eigu Samherja. Um er að ræða sérhæft verkefni, sem krefst mikillar nákvæmni og voru erlendir sérfræðingar fengnir til landsins í tengslum við vélarupptekt og slípun á sveifarási.
Gabríel Ingimarsson snýr aftur í heimahagana og tekur við stöðu rekstrarstjóra Hríseyjarbúðarinnar eftir nokkurra ára fjarveru með viðkomu í Reykjavík, Laugum í Reykjadal og Brussel.
„Starf Zontaklúbbsins Þórunnar hyrnu er í nokkuð föstum skorðum. Við hittumst einu sinni í mánuði frá september og fram í maí á fundum þar sem tekin eru fyrir málefni sem tengjast Zontastarfinu, við njótum þess að vera saman og gleðjast, það er alltaf mikil gleði sem fylgir okkar samveru,“ segir Sesselja Sigurðardóttir talsmaður Zontaklúbbsins Þórunnar hyrnu og fyrrverandi svæðisstjóri Zonta á Íslandi. Klúbburinn heldur upp á 40 ára afmæli sitt í Deiglunni næstkomandi laugardag, 5. október kl. 15. Þar verður afmælisboð og efnt til listaverkauppboðs. Bæjarbúum er boðið að koma og fagna með Zontakonum.
Hollvinir komu á dögunum færandi hendi með nýjar speglunarstæður á skurðstofur. Þeir létu nú ekki þar við liggja og færðu speglunardeild þvottavélar til handa speglunartækjum.
„Fiskþurrkun Samherja að Laugum er fjölmennur vinnustaður í sveitarfélaginu og lýsir sveitarstjórn þungum áhyggjum af stöðu mála, þar sem óljóst er um framtíð starfanna,“ segir í bókun sem Jóna Björg Hlöðversdóttir lagði fram á fundi sveitarstjórnar Þingeyjarsveitar. Þurrkun fiskafurða á Laugum var þar til umræðu.
Hafið smá þolinmæði með mér. Mig langar til að byrja á lítilli sögu af þeim skáldbræðrum og vinum, skáldinu á Sandi, Guðmundi Friðjónssyni, og þjóðskáldinu, Matthíasi Jochumssyni. Eitt sinn sem oftar leit Guðmundur við hjá vini sínum á Sigurhæðum. Þeir höfðu um margt að spjalla, báðir skrafhreifnir og áhugasamir um menn og málefni. Loks kemur þó að kveðjustund og þar sem þeir eru komnir út á tröppu spyr Guðmundur skyndilega: „Geturðu sagt mér, Sigurhæðabúi, hvernig ég muni geta haldið mér andlega ungum til æviloka?“
Matthías svaraði samstundis: „Það get ég sagt þér, minn elskulegi, með því að skipta oft um skoðun.“
KA og Þór verða í vetur með æfingar fyrir 6 - 16 ára börn og unglinga með sérþarfir, æfingarnar fara fram í Íþróttahúsi Naustaskóla og hefjast þær n.k. sunnudag kl 11.
Íþróttabærinn Akureyri býður uppá fjölskyldutíma í Íþróttahöllinni á völdum sunnudögum fram í desember.
„Markmiðið er bleikur fjörður,“ segir Vilborg Jóhannsdóttir kaupmaður í Centró og forsvarsmaður Dekurdaga á Akureyri. Sala á bleiku slaufunni stendur sem hæst um þessar mundir og gengur vel. Allur ágóði af sölunni rennur að vanda til Krabbameinsfélags Akureyrar og nágrennis.
Heilbrigðisnefnd Norðurlands eystra lýsir yfir vonbrigðum með að áform fyrirtækisins Skútabergs um tiltekt á athafnasvæði sínu á Moldhaugnahálsi hafi ekki gengið eftir.
Fyrirtækið Auto ehf. Setbergi Svalbarðsströnd fékk frest til 1. október til að ljúka tiltekt á lóð sinni. Verði ekki brugðist með fullnægandi hætti við tilmælum um tiltekt íhugar Heilbrigðisnefnd Norðurlands eystra að beita dagsektum þar til úr verður bætt.
Eins og lesendur eflaust muna sagði Vikublaðið frá því á dögunum að fyrirhugað afnám á tollafrelsi sem svokölluð leiðangursskip hafa notið hér við land gæti haft afar neikvæðar afleiðingar fyrir landsbyggðina.
Heilbrigðisstofnun Norðurlands, HSN á 10 ára starfsafmæli í dag, en stofnunin varð til við sameiningu Heilbrigðisstofnunar Þingeyinga, Heilsugæslunnar á Akureyri, Heilsugæslustöðvarinnar á Dalvík, Heilbrigðisstofnunar Fjallabyggðar, Heilbrigðisstofnunar Sauðárkróks og Heilbrigðisstofnunar Blönduóss, þann 1. október 2014.
Björgunarþyrlan TF-LIF er nú orðin sýningarhæf og var þeim áfanga fagnað hjá Flugsafni Íslands á Akureyri og Öldungaráði Landhelgisgæslunnar.
Ráðstefnan Löggæsla og samfélag fer fram í sjöunda sinn við Háskólann á Akureyri dagana 2. og 3. október. Þema ráðstefnunnar er samfélagslöggæsla en á ráðstefnudagskránni eru 63 erindi af margvíslegum toga.
Það er gott að vera við öllu búin og ekki síst ef nokkuð er í aðstoð þegar eitthvað bjátar á. Á Facebooksíðu Lögreglunar á Norðurlandi eysta er frásögn af æfingum sem fram fóru í og við Grímsey um nýliðna helgi Annars vegar var æfing á sjó nokkuð sunnan við eyjuna og svo við flugbrautina í Grimsey þar sem likt var eftir björgun eftir brotlendinu flugvélar. Heimafólk fékk þarna kærkoma æfingu, og nauðsynlega auðvitað í viðbrögðum ef óhapp hendir.
Þriðjudaginn 1. október kl. 17-17.40 heldur þýski myndlistarmaðurinn Wolfgang Hainke Þriðjudagsfyrirlestur í Listasafninu á Akureyri um Flúxus-sýningarverkefnið Stranded – W(h)ale a Remake Portfolio – More Than This, Even, sem sett var upp í sölum 10 og 11 í Listasafninu síðastliðið vor. Aðgangur er ókeypis.
,,Ert þú Palli Rist?" sagði mjóslegin rödd að baki mér þegar ég gekk norður Brekkugötuna. Ég sneri mér við og sá lítinn dreng sem stóð inni í garði við snyrtilegt hús. Ég svaraði og gekkst fúslega við því að vera ekki Páll Rist. Við tókum svo stutt spjall þarna saman sveitungarnir um hugarefni dagsins, einkum þó þau sem voru unga manninum efst í huga.
Situlagnir aftan við rotþró frá Hótel Kjarnalundi þjónuðu ekki hlutverki sínu með þeim afleiðingum að lítið hreinsað skólp rann um þær og út í umhverfið. Fráveita frá Hótel Kjarnaskógi var til umræðu á fundi Heilbrigðiseftirlits Norðurlands eystra nýverið en tilkynnt var um talsverða skólpmengun í Kjarnaskógi, skammt ofan við Brunná seinni partinn í ágúst.
Vísindamanneskjan í september er Eva María Ingvadóttir, aðjúnkt við Auðlindadeild Háskólans á Akureyri.
„Hvati okkar til að halda málþing sem þetta er margþættur. Það er stefna Heilsu- og sálfræðiþjónustunnar að láta okkur samfélagsmál varða tengt lýðheilsu, hitta fólk, tala og vinna saman í þeim efnum,“ segir Sigrún Heimisdóttir, framkvæmdastjóri og sálfræðingur hjá Heilsu- og sálfræðiþjónustunni sem efnir til málþings í næstu viku, föstudaginn 4. október um áföll í starfi. Það fer fram á Múlabergi, Hafnarstræti 89, Hótel KEA og hefst kl. 10.