Mánudaginn 27. apríl fékk Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis styrk í minningu Evu Bjargar Skúladóttur sem hefði orðið 50 ára þann dag.
Styrkinn, að upphæð 200.000 kr. veitti hópurinn Agora 7 til að heiðra virðingu hennar Evu og styðja við mikilvægt fræðslustarf félagsins, en styrkurinn á að nýtast í fræðslumál innan félagsins.