
Fróðir fjármálasnillingar og frábærar fyrirmyndir í Fjallabyggð
Mikilvægt að fjalla um það sem jákvætt er
Mikilvægt að fjalla um það sem jákvætt er
Valgerður Gunnarsdóttir lætur af störfum sem skólameistari Framhaldsskólans á Húsavík eftir farsælan feril
Það hefur ekki farið framhjá einum eða neinum að veðrabrigði blasa við okkur og það er best að taka þá veðurspá alvarlega. Það mun bresta á um og eftir hádegi á morgun mánudag og Veðurstofa Íslands hefur gefið út gular og svo appelsínugular viðvaranir.
Þúsundir Akureyringa og gesta kynntu sér starfsemi Útgerðarfélags Akureyringa við Fiskitanga á Akureyri í gær, laugardaginn 31. maí.
Fjölmenni var í Sandgerðisbót í dag og naut fólk dagskrár í tengslum við Sjómannadaginn ríkulega. Verbúðir voru opnar og boðið uppá smakk af sjávarfangi, Karlakór Akureyrar tók lagið og eitt þúsund grillaðar pylsur runnu vel niður hjá gestum sem eins og fyrr sagði létu sig ekki vanta.
Útgerðarfélag Akureyringa heldur um þessar mundir upp á 80 ára afmæli sitt, félagið var formlega stofnað 26. maí árið 1945. Aðeins fyrr eða um miðjan mars hafði verið boðað til undirbúningsfundar þar sem áhugi fyrir stofnun útgerðarfélags í bænum var kannaður.
Verkefnið Afhverju Ekki hlaut Hvatningarverðlaun Eyrarrósarinnar 2025!
Afhverju Ekki, einnig nefnt „The Absolutely Everything Studio“, er þverfaglegt vinnustofu-rannsóknarsetur sem stofnað var árið 2024. Verkefnið er leitt af Dr. Jack Armitage fræði- og listamanni. Afhverju Ekki stuðlar að samvinnu og samstarfi með það að marki að finna lausnir á flóknum vistfræðilegum viðfangsefnum. Setrið er staðsett í Breiðanesi, á Laugum í Þingeyjarsveit. Þegar hefur verið tekið á móti sex fræði- og listamönnum sem komið hafa til vinnudvalar og unnið að hönnun, hugbúnaðarþróun og listsköpun, meðal annars fyrir sýningu Íslands á Feneyjartvíæringnum í arkitektúr.
Alls voru brautskráðir 186 nemendur frá Verkmenntaskólanum á Akureyri við athöfn síðastliðinn laugardag. Þeir voru af tuttugu námsbrautum auk meistaranáms að loknu sveinsprófi.
Í tilefni af 80 ára afmæli Útgerðarfélags Akureyringa er almenningi boðið að kynna sér starfsemi ÚA við Fiskitanga á Akureyri, laugardaginn 31. maí frá klukkan 11:00 til 13:00.
Rúm 50 ár eru nú liðin frá stofnun hljómsveitarinnar Þokkabótar. Fyrsta plata þeirra, Upphafið, kom út 1974. Hún vakti mikla athygli fyrir beitta texta, grípandi lög og geðgóðan flutning. Þekktasta lagið var „Litlir kassar“ og var einkennandi fyrir þá geðgóðu þjóðfélagsrýni sem einkenndi sveitina okkar á milli.
Þann 15. maí sl. var aðalfundur Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga haldinn á Hilton Reykjavík Nordica. Dagbjört S. Bjarnadóttir var þar heiðruð þar sem hún hlaut hvatningarstyrk ásamt fjórum öðrum hjúkrunarfræðingum fyrir þeirra framlag í greininni.
Kvennakórinn Embla ásamt hljómsveit, Þórunni Ósk Marínósdóttur violuleikara og Erlu Dóru Vogler mezzosópran flytja Messu fyrir særða jörð eftir tónskáldið Ketil Björnstad og textahöfundinn Erik Hillestad. Tónleikarnir verða í Glerárkirkju sunnudaginn 1. júní kl 17. Stjórnandi er Roar Kvam.
Eitt af meginmarkmiðum Alzheimersamtakanna er að auka þekkingu og dýpka skilning á þeim áskorunum sem einstaklingar með heilabilun og aðstandendur þeirra standa frammi fyrir. Þau halda því reglulega fræðsluerindi víðsvegar um landið.
Eydís Sigurgeirsdóttir sem hefur unnið hjá Slökkviliði Akureyrar í sjö ár, er i viðtali á Fb síðu Akureyrarbæjar í dag undir liðnum Akureyringur Vikunnar. Eydís kláraði bráðatækninám, ásamt samstarfskonu sinni Bryndísi Elvu Bjarnadóttur, frá NMETC í Massachusetts í febrúar.
Í maí mánuði ár hvert fer fram uppgjör hjá þeim eldri borgurum sem fá greiðslur frá Tryggingastofnun.
Vísindafólkið okkar - Þorlákur Axel Jónsson
Vísindafólkið okkar er mánaðarleg kynning á vísindafólkinu okkar. Þorlákur Axel Jónsson, aðjúnkt við Kennaradeild, er vísindamanneskja maímánaðar.
Akureyrarbær hefur hafið átaksverkefni þar sem lóðarhafar iðnaðar- og athafnalóða eru hvattir til að taka til á lóðum sínum nú á vordögum. Þetta gildir jafnt um muni á lóðum, á lóðarmörkum og utan lóða. Samhliða eru allir hvattir til að sækja um stöðuleyfi fyrir gáma.
„Það er allt klárt nema staðsetningin,“ segir Sigfús Ólafur Helgason sem er í forsvari fyrir hóp fyrrverandi ÚA sjómanna. Þeir hafa nú samið við Slippinn um smíði minnismerkis um sögu síðutogara og sjómenn. Stefnt er að því að setja verkið upp í sumar.
-Þrír menntamálaráðherrar hafa komið og farið, „en enginn að halda þessum byggingaáformum á lofti lengur.
Ársfundur Sjúkrahússins á Akureyri (SAk) fór fram í gær. Þar flutti Hildigunnur Svavarsdóttir forstjóri sjúkrahússins ávarp þar sem farið var yfir stöðuna í rekstri og starfsemi SAk, framtíðarhorfur, tækifæri og helstu áskoranir. Yfirskrift fundarins var „Samskipti – Öryggi – Gæði“.
Afhverju Ekki, einnig nefnt „The Absolutely Everything Studio“, er þverfaglegt vinnustofu-rannsóknarsetur sem stofnað var árið 2024. Verkefnið er leitt af Dr. Jack Armitage fræði- og listamanni. Afhverju Ekki stuðlar að samvinnu og samstarfi með það að marki að finna lausnir á flóknum vistfræðilegum viðfangsefnum. Setrið er staðsett í Breiðanesi, á Laugum í Þingeyjarsveit. Þegar hefur verið tekið á móti sex fræði- og listamönnum sem komið hafa til vinnudvalar og unnið að hönnun, hugbúnaðarþróun og listsköpun, meðal annars fyrir sýningu Íslands á Feneyjartvíæringnum í arkitektúr.
Sýningin verður opin föstudag 30. maí frá 19 – 21 og laugardag 31. maí frá 14 – 15.45, ath. Sýningin stendur uppi meðan á tónleikum MÝR tríós stendur, en þeir sem hefjast kl. 16.00 þann 31.mai n.k.
Með hækkandi sólu kemur í ýmislegt í ljós, á milli trjáa og ofan í skurðum. Glaðlegir túnfíflar, spriklandi köngulær, skærgrænt gras - og því miður oft talsvert rusl. Þá er kjörið tækifæri til að taka höndum saman og hreinsa til, áður en grasið hækkar og runnarnir þéttast.
Öldungaráð Akureyrar mælir með því að þátttaka eldri borgara í verkefninu Virkum efri árum sem snýst um alls kyns íþróttaiðkun, verði gjaldfrjáls. Ráðið óskar eftir upplýsingar um hvar mál standa varðandi stuðning við tekjulægri hópa með lýðheilsustyrk.
Minningarsigling verður um horfna og látna sjómenn í tengslum við hátíðarhöld á sjómannadaginn, en siglt verður með Húna II EA 740 næsta laugardag, 31. maí kl. 17.
Kynningarfundur um Executive MBA námið við Háskóla Íslands haldinn í Múlabergi, Hótel KEA miðvikudaginn 28.maí kl. 12:15.
Kl. 02:51 í nótt barst tilkynning til lögreglunnar um heimilisofbeldi í heimahúsi á Húsavík og að hnífi hafi verið beitt. Þegar lögregla og sjúkralið komu á vettvang kom í ljós að þar voru tveir aðilar með áverka.