Alls voru brautskráðir 186 nemendur frá Verkmenntaskólanum á Akureyri við athöfn síðastliðinn laugardag. Þeir voru af tuttugu námsbrautum auk meistaranáms að loknu sveinsprófi.
Skírteinin voru 219 því 33 nemendur tóku við tveimur og jafnvel þremur skírteinum. Þetta er næst fjölmennasti útskriftarhópur í sögu skólans. Heildarfjöldi útskrifaðra nemenda skólans á þessu skólaári eru 302, því 116 nemendur voru brautskráðir í desember síðastliðnum. Eftir því sem næst verður komist hefur skólinn aldrei áður brautskráð jafn marga nemendur á einu skólaári.
Sigríður Huld Jónsdóttir skólameistari brautskráði nemendur í síðasta sinn, en hún lætur af störfum á komandi sumri. Hún nefndi í ræðu sinni að VMA hefði alltaf staðið fyrir fjölbreytileika og sveigjanleika í námsframboði og tækifærum til menntunar. Enginn skóli á Íslandi fyrir utan Tækniskólann í Reykjavík byði upp á jafn fjölbreytt námsframboð.
Umræða oft um fortíð ekki framtíð
„Ég kalla eftir frekari umræðu um framhaldsskólastigið og að hún snúist um eitthvað annað en lokapróf og námsmat eða afturhvarf til stúdentsprófsbrauta frá síðustu öld. Umræðan einkennist um of á skóla en ekki nám og um fortíðina en ekki framtíðina,“ sagði Sigríður Huld. Hún vildi sjá umræðu á faglegum nótum og að betur verði greint hvers konar nám þurfi inn í framtíðina. Fyrst og fremst þyrfti að finna út hvernig hægt væri að auka áhuga ungs fólks á námi og að ljúka námi hvort heldur það væri til að undirbúa nemendur fyrirháskólanám eða atvinnulíf.
Mikilvægt á tímum falsfrétta að þjálfa gagnrýna hugsun
„Það þarf að þjálfa gagnrýna hugsun og þjálfa huga og hönd, efla sköpunarkraftinn og virkja nýjar hugmyndir. Þjálfa rökhugsun með því að greina og meðtaka upplýsingar, sannprófa þekkingu og miðla henni. Nú á tímum falsfrétta og upplýsingaóreiðu er mikilvægt að þjálfa gagnrýna hugsun, miðla samkennd og efla lýðræðislega umræðu. Ekki síður þurfum við að standa vörð um lýðræðislegt skólastarf án ritskoðunar og afskipta pólitískra afla sem tala gegn gagnrýndu rannsóknarstarfi og umræðu um mannréttindi og lýðræði.