Norðlensk hönnun og handverk stendur fyrir sýningu nú um komandi helgi, dagana 17. – 18. október. Sýningin er í Hlíðarbæ og er opin báða dagana frá kl. 11 til 17.
„Við fögnum hausti og bjóðum til skapandi og skemmtilegrar haustsýningar Norðlenskrar hönnunar og handverks. Sýningin er árleg og hefur fyrir löngu skapað sér sess meðal fjölmargra Norðlendinga og gesta,“ segir Kristín S. Bjarnadóttir sem ásamt Kjartani Reyni Ólafssyni stendur fyrir sýningunni.
Hún segir að í boði séu vandaðar vörur úr héraði, sem hægt er að versla beint og milliliðalaust frá hönnuðum og handverksfólki. Þá er úrval af sælkeravörum í boði sem ávallt njóta vinsælda.
Kvenfélög og Lionsklúbbar hafa veg og vanda að kökubasar sem ævinlega fellur í kramið hjá gestum sýningarinnar. Þá er Vonarbrú með bás þar sem m.a. eru til sölu kerti og fleira.
Yfir 20 sýnendur taka þátt að þessu sinni og er úrvalið sem áður fjölbreytt. Margir sýnenda koma ár eftir ár og svo eru aðrir sem eru að koma í fyrsta skipti og því alltaf eitthvað nýtt að sjá.
„Þessi viðburður hefur fest sig í sessi í menningarlífi Eyfirðinga, það hafa margir ánægju af því að skoða það sem verið er að gera á sviði hönnunar og handverks hér um slóðir,“ segir Kristín. „Hér er í boði ilmandi kaffi frá Nýju kaffibrennslunni og hægt að slá tvær flugur í einu höggi, gera sér glaðan dag og gera góð kaup í leiðinni.“