Víðavangshlaup Íslands í Kjarnaskógi á morgun laugardag

Sprett úr spori í Kjarnaskógi      Mynd akureyri.is
Sprett úr spori í Kjarnaskógi Mynd akureyri.is

Á morgun, laugardaginn 17. október, verður Víðavangshlaup Íslands hlaupið í Kjarnaskógi. Víðavangshlaup Íslands var fyrst haldið árið 1948 og á hverju ári frá 1978. Hlaupin eru oftast á bilinu 1,5-10 km.

Hringurinn sem hlaupinn verður í Kjarnaskógi er 1.650 km og er hann hlaupinn misoft eftir aldursflokkum en sex sinnum á Íslandsmeistaramóti 20-40 ára. Upphafs- og endamörk eru við Kjarnavöll nærri Múmínhúsinu.

Samhliða Víðvangshlaupi Íslands verður hlaupið í opnum flokki sem er kjörinn fyrir þau sem vilja skokka hringinn í fallegu haustveðri. Mótshaldarar segja að Kjarnaskógur henti afar vel fyrir víðavangshlaup og að leiðin sé stórskemmtileg, farnir verði mjúkir skógarstígar, nánast aldrei á jafnsléttu, og margar hlykkjur á leiðinni þannig að fólk sjái reglulega til þeirra sem eru annaðhvort langt á undan eða langt á eftir í brautinni. „Upplifunin verður því eins og maður sé að hlaupa með miklu fleirum en maður gerir vanalega í venjulegu götuhlaupi,“ segir Þorbergur Ingi Jónsson mótsstjóri.

Eftir hlaup verður boðið upp á heitt kakó og þetta verður án efa skemmtilegur útivistardagur fyrir alla fjölskylduna í skóginum góða.

Það er Fjallahlaupaþjálfun í samstarfi við UFA og 66 N sem heldur Víðavangshlaup Íslands í Kjarnaskógi.

Skráning og nánari upplýsingar.

 

www.akureyri.is sagði fyrst frá

Nýjast