Alzheimersamtökin með fræðslu á Norðurlandi

Eitt af meginmarkmiðum Alzheimersamtakanna er að auka þekkingu og dýpka skilning á þeim áskorunum sem einstaklingar með heilabilun og aðstandendur þeirra standa frammi fyrir. Þau halda því reglulega fræðsluerindi víðsvegar um landið.

Nú er förinni heitið norður þar sem haldin verða þrjú fræðsluerindi. Eitt á Húsavík, annað á Dalvík og það þriðja á Akureyri. Þar verður starfsemi Alzheimersamtakanna kynnt og fjallað um heilabilun og samskipti.

Fyrsti fræðslufundurinn verður á Húsavík í Hlyn, félagsaðstöðu eldri borgara á mánudag, 2. júní kl. 17. Þá verður fundur í Bergi menningarhúsi á Dalvík á þriðjudag, 3. júní kl. 19:30 og sá þriðji og síðasti verður í félagsmiðstöðinni Sölku á Akureyri á miðvikudag, 4 júní kl. 17.


Þeir sem mæta öðlast skilning á heilabilun og hvernig megi bregðast við breyttum aðstæðum. Þá verður farið yfir leiðir til að auðvelda samskipti og hugmyndir fyrir ánægjulegar samverustundir reifaðar.

Thelma Jónsdóttir, fræðslustjóri og Ásta Kristín Guðmundsdóttir, ráðgjafi samtakanna mæta á fundinum Á fundinum á Dalvík verður Elísa Rán Ingvarsdóttir, hjúkrunarforstjóri Dalbæjar, einnig með stutt erindi og kynnir m.a. þróunarverkefnið Gott að eldast. Á Akureyri verður Björg Jónína Gunnarsdóttir, Alzheimertengill á Akureyri með kynningu á starfinu þar í bæ.

Fyrirlestrarnir eru opnir öllum áhugasömum og aðgangur ókeypis.

 

Nýjast