Útgerðarfélag Akureyringa heldur um þessar mundir upp á 80 ára afmæli sitt, félagið var formlega stofnað 26. maí árið 1945. Aðeins fyrr eða um miðjan mars hafði verið boðað til undirbúningsfundar þar sem áhugi fyrir stofnun útgerðarfélags í bænum var kannaður.
Tilgangurinn var að sækja um heimild til ríkisstjórnar til skipakaupa. Ríkisstjórn Ólafs Thors hafði þá ákveðið að nýta stríðsgróða til að endurnýja togaraflota landsmanna og var frestur til að sækja um að renna út. Tæpum tveimur árum eftir stofnfundinn, 17. maí 1947, kom fyrsti togari ÚA til heimahafnar, Kaldbakur EA 1, 654 brúttótonna skip, smíðað í Englandi.
Þáttaskil í atvinnusögu bæjarins
Sögu Útgerðarfélags Akureyringa verður gerð skil á sýningu sem opnuð verður á Iðnaðarsafninu á Akureyri á sjómannadag, næsta sunnudag. Haraldur Þór Egilsson safnstjóri Minjasafnsins, sem tekið hefur við umsjón Iðnaðarsafns segir sjávarútveg hafa gengt mikilvægu hlutverki í sögu Akureyrar og þar hafi stærsta skrefið verið stigið með stofnun ÚA. „Það urðu ákveðin þáttaskil í atvinnusögunni og hefur félagið nú í 80 ár verið burðarás í atvinnulífi bæjarins,“ segir Haraldur og bætir við að það sé ánægjulegt að geta á þessum tímamótum gert hlut sjávarútvegs í bæjarlífinu hærra undir höfði á Iðnaðarsafninu. Lítið hafi áður verið fjallað um fiskvinnslu á safninu.
Nútíð og fortíð
Sýningin á Iðnaðarsafninu er liður í að endurnýja rými þess. Henni hefur verið komið fyrir í tveimur sölum safnsins. Þar eru ljósmyndir og lifandi myndir að auki í bland við allra handa gripi sem tengjast sögunni og þá eru það einnig módel af skipum. Markmið með sýningunni sé að sýna hvernig fiskvinnsla og sjómennska er á okkar tímum ásamt því að horfa yfir farinn veg. „Sýning nær til allrar starfsemi ÚA um tíðina en hún hefur verið viðamikil bæði á árum áður og nú um stundir,“ segir Haraldur.
Mikil vinna hefur verið lögð í að setja þessa áhugaverðu sýningu upp, en í fyrstu var ætlunin að hún yrði opnuð á næsta ári. „Í tilefni af þessum tímamótum nú, 80 ára afmæli félagsins nú í ár, var opnun flýtt og það þýddi að við ýttum öðrum fyrirhuguðum verkefnum aðeins til hliðar á meðan,“ segir Haraldur
Sýningin verður sem fyrr segir opnuð á morgun sunnudag og stendur hún út árið 2026.