Skítaveður í kortunum

Það verða nokkuð hressileg umskipti í veðrinu gangi veðurspár eftir  Mynd gn
Það verða nokkuð hressileg umskipti í veðrinu gangi veðurspár eftir Mynd gn

Það hefur ekki farið framhjá einum eða neinum að veðrabrigði blasa við okkur og það er best að taka þá veðurspá alvarlega. Það mun bresta á um og eftir hádegi á morgun mánudag og Veðurstofa Íslands hefur gefið út gular og svo appelsínugular viðvaranir.

Bændur eru á tánum og er ekki annað að sjá en þeiir muni hýsa fé sitt. Hætt er við að þröngt verði um en það er huggun að veður mun skána liklega upp úr hádegi á þriðjudag.

Færð mun trúlega spillast amk á fjallvegum enda flestir komnir á sumardekk, og varp fugla gæti því miður spillst.

Við þekkjum þetta, fengum svona sendingu í fyrra, en skulum hafa í huga fleyg orð Óla Þórs veðurfræðings á RÚV sem benti áhyggjufullum spyrjanda s.l. vetur á eftrifrandi.

,,Aldrei hefur komið það slæmt veður, að það lagist ekki!”

Nýjast