-Þrír menntamálaráðherrar hafa komið og farið, „en enginn að halda þessum byggingaáformum á lofti lengur
„Fyrir rúmlega ári síðan var ákveðið að hefja undirbúning að hönnun viðbyggingar við skólann og var skrifað undir samkomulag þess efnis milli ríkisins, sveitarfélaganna á svæðinu og skólans. Síðan hefur ekkert heyrst,“ sagði Sigríður Huld Jónsdóttir skólameistari í ræðu sinni við brautskráningu frá Verkmenntaskólanum á Akureyri um liðna helgi.
„Reyndar hafa þrír menntamálaráðherrar verið á þessu rúmlega ári en að því er virðist er enginn að halda þessum byggingaráformum lengur á lofti. Húsnæðismál skólans eru einn af þeim þáttum sem koma í veg fyrir að hægt sé að fjölga nemendum í iðnnámi, eins og stjórnvöld stefna að og spurn er eftir. Innviðaskuldin er líka í framhaldsskólunum, sérstaklega í verknámsskólum þar sem tækjakostur og aðstaða nemenda og starfsfólks er orðin gömul og úr takti við nútímann,“ sagði Sigríður Huld.
…ásamt því að setja upp tímalínu
Viðbyggingin sem um ræðir á að rísa á norðurplani VMA og verða um 1500 fermetrar að stærð. Þar á m.a. að fara fram nám í húsasmíði og bifvélavirkjun auk þess sem bæta átti úr aðstöðu fyrir aðrar iðngreinar í kjölfarið. Þegar skrifað var undir samning um viðbótarhúsnæði við VMA í maí í fyrra kom fram að nú yrði hægt að hefja hönnunarvinnu tengt stækkuninni og breytingum á núverandi húsnæði ásamt því að setja upp tímalínu fyrir verkefnið.
„Þessi stækkun er hluti af átaki stjórnvalda til að bæta aðstöðu í framhaldsskólum þar sem fer fram nám í iðn- og starfsnámi með það að markmiði að fjölga nemendum í iðn- og starfsnámi,“ sagði í tilkynningu sem gefin var út í tengslum við fyrirhugaða uppbyggingu við skólann.
Einu sinni var