Mikilvægt að fjalla um það sem jákvætt er
Of oft er athygli beint að því sem neikvætt er í opinberri umræðu. Það er ekki til þess fallið að hvetja ungt fólk til dáða. Það ætti fremur að fjalla um það sem vel gert, og þá ekki síst það sem snýr að ungu fólki. Það er alltaf ástæða til að hampa þeim sem vel gengur, eftir að hafa lagt á sig mikla vinnu og uppskera í samræmi við það. Samtök fyrirtækja í fjármálaþjónustu hafa barist fyrir því að fjármálalæsi verið gert að skyldufagi í öllum grunnskólum landsins, þannig að ekkert barn fari út í lífið án þess að hafa grundvallarþekkingu í fjármálum. Nú er fjármálalæsi kennt í mörgum skólum ýmist sem skyldufag eða valfag, en í of mörgum skólum er fjármálalæsi ekki kennt.
Evrópukeppni í fjármálalæsi
Árlega standa SFF fyrir keppni í fjármálalæsi í grunnskólum, og fulltrúar þess skóla sem vinnur keppnina fara til Brussel og keppa fyrir Íslands hönd í Evrópukeppni í fjármálalæsi.Rétt eins og aðrir sem keppa fyrir Íslands hönd t.d. í íþróttum, þá er sannarlega vert að horfa á þessa krakka sem frábærar fyrirmyndir. Þau eru að uppskera erfiði, eftir mikla vinnu. Oft eru það sömu skólarnir sem keppast um efstu sætin, sem skýrist af því að það eru framsýnir skólastjórnendur og frábærir kennarar sem leggja sig fram og hvetja börnin áfram.Í ár voru það fróðir fjármálasnillingar í Fjallabyggð sem unnu keppnina á Íslandi, en Grunnskóli Fjallabyggðar vann einnig 2022.
Krakkarnir úr Fjallabyggð stóðu sig vel í Evrópukeppni í fjármálalæsi
Tinna Hjaltadóttir og Steingrímur Árni Jónsson nemendur í 10. bekk Grunnskóla Fjallabyggðar voru fulltrúar Íslands í Evrópukeppni í fjármálalæsi sem fram fór í Brussel 23. maí sl. Ísland hafnaði í öðru sæti af Norðurlöndunum á eftir Svíþjóð og voru í miðjunni af þeim 30 löndum sem tóku þátt. Sigurvegarar keppninnar í ár var lið Ítalíu.
Tinna Hjaltadóttir og Steingrímur Árni Jónsson
73.000 nemendur, í 3000 grunnskólum í 30 löndum tóku þátt í undankeppni heima fyrir
Á Íslandi tóku um 2.000 nemendur í 60 skólum þátt í undankeppninni en samtals voru það 73.000 nemendur sem tóku þátt í undankeppnum. Íslensku keppendurnir voru vel undirbúnir fyrir keppnina í Brussel. Sigurlaug Ragna Guðnadóttir stærðfræðikennari í Grunnskóla Fjallabyggðar hvatti krakkana vel áfram. Hún er afar stolt af öllum krökkunum í Fjallabyggð sem með samstilltri vinnu unnu undankeppnina.
Í keppninni svara þátttakendur spurningum um þekkingu þeirra almennt á persónulegum fjármálum eins og um sparnað og lán og vexti, áhrif verðbólgu á virði peninga og mikilvægi netöryggis. Íslensku keppendurnir voru með öll svör rétt, en mikil tímapressa er á liðunum.
Skilaboð frá fróðum fjármálasnillingum og frábærum fyrirmyndum
„Þetta var rosalega skemmtileg og lærdómsrík ferð. Það er mikill heiður að fá að keppa fyrir Íslands hönd og sérstaklega á svona stóru sviði. Við viljum þakka bekkjarfélögum okkar í Fjallabyggð fyrir vinnuna í íslensku keppninni því annars hefðum við aldrei fengið þetta tækifæri í Brussel. Við teljum að allir krakkar eigi að læra um fjármál í skóla, því það er mikilvægt að læra hvernig fara á vel með peninga og að undirbúa sig fyrir framtíðarfjármálin“ segja þau Tinna og Steingrímur.
Ég vil hvetja alla framsýna skólastjórnendur og kennara til að veita ungmennum tækifæri til að læra um fjármál og krydda námið með skemmtilegri keppni. Kennsla í fjármálalæsi er leið til að jafna tækifæri allra barna til að byggja upp heilbrigðan fjárhag, slíkt á ekki eingöngu að vera í boði í sumum skólahverfum. Þá á bakland foreldra ekki að skipta máli og svikahættur leynast á netinu. 90% íslenskra ungmenna segjast vilja hafa lært meira um fjármál í grunnskóla, er ekki sanngjarnt að verða við því?
Við höldum áfram að berjast fyrir því að kennsla í fjármálum verði gert að skyldufagi í öllum grunnskólum landsins.