Kvaddi skólann eftir 20 ár

Valgerður með nokkrum af þeim sem útskrifuðust á laugardag. Mynd/Kiddý Hörn Ásgeirsdóttir.
Valgerður með nokkrum af þeim sem útskrifuðust á laugardag. Mynd/Kiddý Hörn Ásgeirsdóttir.

Á Laugardag í síðustu viku brautskráði Framhaldsskólinn á Húsavík 20 nýstúdenta og fjóra af heilsunuddbraut við hátíðlega athöfn í Húsavíkurkirkju.

Þetta var 21. brautskráning Valgerðar Gunnarsdóttur sem lætur nú af störfum sem skólameistari Framhaldsskólans á Húsavík.

„Mikið sem ég er alltaf stolt af þessu frábæra og dásamlega unga fólki sem ég hef fengið að vinna með, það eru sannkölluð forréttindi. Ég var kvödd formlega með blómum og gjöfum og ótrúlega fallegum ræðum sem ylja inn að hjartarótum. Endalaust þakklæti, kæru samstarfsmenn og nemendur, ég mun sakna ykkar,“ sagði Valgerðu við tilefnið.

Blendnar tilfinningar

Vikublaðið heyrði í Valgerði af þessu tilefni en hún sagði að það væri erfitt að lýsa tilfinningunni á þessum tímamótum.

„Ég er ekkert fegin að vera laus, ég hefði vel getað hugsað mér að vera áfram en þetta eru lög hjá ríkisstarfsmönnum. En mér finnst ég hafa nóg að gefa enn þá og er full starfsorku þannig að ég finn mér eitthvað að gera,“ segir Valgerður.

Valgerður var kennari við Framhaldsskólann á Húsavík í 13 ár áður en hún flutti sig yfir í Reykjadal og tók við sem skólameistari Framhaldsskólans á Laugum þar sem hún stýrði með röggsemi í 14 ár. „Svo er ég búin að vera skólameistari FSH í sjö ár, þannig að ég er búin að vera í skólakerfinu í 35 ár í rauninni,“ segir Valgerður.

Heldur manni ungum

Valgerður Gunnarsdóttir, skólameistari Framhaldsskólans á Húsavík við sína síðustu brautskráningarathöfn. Mynd/Hafþór Hreiðarsson.

Valgerður segir að þessi ár hafi liðið hratt enda hafi starfið alltaf verið gefandi og ánægjulegt. „Það hefur verið gríðarlega ánægjulegt að vinna með öllu þessu unga fólki. Ég hef alltaf sagt að það heldur manni ungum að vinna með ungu fólki. Þetta er svo skemmtilegt og frábært fólk sem ég hef borið gæfu til að vinna með og koma að framtíðinni hjá bæði framhaldsskólanum á Laugum og á Húsavík,“ útskýrir Valgerður og bætir við að með aldrinum öðlist maður betri skilning á því hvað unga fólkið er mikilvægt.

„Eftir því sem maður eldist þeim mun betur skilur maður og kann að meta það að vera samtíða öllu þessu unga fólki. Svo hef ég auðvitað verið ótrúlega heppin með samstarfsfólk á báðum þessum stöðum. Fólk sem hefur haft gríðarlegan metnað fyrir þessum skólum báðum. Það er það sem stendur upp úr og gæfan yfir því hvað þetta hefur verið farsælt,“ segir Valgerður stolt.

Stolt af árangrinum

Axel Tryggvi Vilbergsson dúxaði með hreina tíu í meðaleinkunn. Mynd/Eyrún Tryggvadóttir.

Valgerður segir að hún hafi verið ákaflega stolt þegar hún brautskráði sinn síðasta stúdentahóp á laugardag og að Framhaldsskólanum hafi borið gæfa til að undirbúa nemendur vel fyrir frekara háskólanám.

Axel Tryggvi Vilbergsson var dúx og útskrifaðist með hreina tíu en það er ekki nema þrjú ár síðan Elín Anna Óladóttir skilaði sama árangri. Þannig að það er óhætt að segja að FSH skili af sér afburðarnemendum.

„Það er svo mikilvægt fyrir okkur að vita að árangur nemenda frá Framhaldsskólanum á Húsavík er mjög góður. Við höfum fengið upplýsingar sem ekki mega fara í loftið en það eru upplýsingar sem styðja allt þetta starf sem er unnið í Framhaldsskólanum á Húsavík. Það segir okkur að við séum að undirbúa nemendur okkar mjög vel og þau komi sterk til náms í háskólanámi,“ útskýrir Valgerður og bætir við að áhersla sín sé alltaf að nemendum líði vel.

Áhersla á vellíðan

„Á þessum sjö árum þá hef ég lagt mikla áherslu á það að nemendum líði vel í skólanum og að þau fái þá aðstoð sem þau þurfa. Það hefur heldur ekki verið neitt vandamál að fá starfsfólk til að vinna á þann hátt. Það hafa allir sameinast um það að gefa þessu unga fólki sem sækir nám á Húsavík bestar aðstæður þannig að það geti aflað sér góðrar undirstöðu og að þeim líði vel,“ segir Valgerður og leggur áherslu á að það gerist ekki nema vera með gott starfsfólk.

„Svo er ég rosalega ánægð með Rakel Hafliðadóttur í félagsmálunum. Hún er að gera svo rosalega vel með krökkunum. Hún er búin að halda utan um það í nokkur ár og gert það rosalega vel. Þetta er sameiginlegt verkefni, ég leiði gott teymi og við gerum þetta allt saman,“ segir Valgerðu að lokum.

 

Nýjast