Vicente Fita Botet - Dagleg Kynni

Vicente Fita Botet opnar sýningu sína í Deiglunni n.k föstudag kl 19
Vicente Fita Botet opnar sýningu sína í Deiglunni n.k föstudag kl 19

Sýningin verður opin föstudag 30. maí frá 19 – 21 og laugardag 31. maí frá 14 – 15.45, ath. Sýningin stendur uppi meðan á tónleikum MÝR tríós stendur, en þeir sem hefjast kl. 16.00 þann 31.mai n.k. 

Um vinnu sína segir Vicente:

„Meðan á dvöl minni hér á Akureyri hefur staðið hef ég haldið stefnu í listsköpun mnni. Ég hef auðgast af myndunum sem ég safna þegar ég kanna nýtt umhverfi með myndavél að vopni.  Í Deiglunni mun ég kynna nýleg verk á pappír sem og frumsýni tvö myndbandsverk, annað gert í Rotterdam og hitt hér.   Utan við sýningarsalinn mun ég að gera tímabundinn skúlptúr úr fundnu efni sem inngrip í almannarýmið" segir Vicente um vinnu sína á Akureyri.

Sýningin er öllum opin og enginn aðgangseyrir, á opnun verður boðið upp á léttar veitingar og spænskt góðgæti.

Vicente fæddist í Cuenca á Spáni árið 1964 og byrjaði að mála mjög ungur, innblásinn af tíðum heimsóknum mínum í Spænska abstraktlistasafnið í heimabæ mínum. Hann útskrifaðist í myndlist frá listaháskólanum í Cuenca og eftir að hafa tekið tímabil í Mulhouse í Frakklandi lauk hann meistaranámi frá Hollenska listaháskólanum í Enschede í austur héruðum Hollands.

Frá árinu 2001 hefur Vicente búið í Rotterdam þar sem hann sameinar störf sín sem listamaður við spænskukennslu.

Í gegnum árin hefur hann byggt upp safn ljósmynda af hlutum sem hann finnur yfirgefna á götunni. Hver og einn þeirra segir sína sögu sem vekur athygli hanns.

Handan frásagnarinnar er áhugi listamannsinns bundinn leifum samtímans, það sem það sem við hendum gefur upplýsingar sem endurspegla lífsstíl okkar og afhjúpa menningarleg ferli sem liggja að baki mannlegri hegðun.

Í neysluhyggju samtímans eru kaup iðulega meiri fullnægja en not hlutarins sem aflað er. Hugtakið „hlutur-orsök löngunar – object-cause of desire“, sem er notað í Lacanískri sálgreiningu, vísar til þessa óljósa þáttar sem knýr löngun okkar áfram en verður í raun aldrei fullnægt.

Tilviljun er lykilþáttur í daglegri listiðkun Vicente, þar sem hann notar hinn „fundna hlut – Objet trouvé “ hugtak sett fram af dada og súrrealistum á síðustu öld, sem véfengdu hugmyndir um hið sanna eðli listarinnar.

Ég mála málverk með því að afrita ljósmyndir af nákvæmni til að ná fram trúrri mynd. Á þennan hátt tengjast verk mín ljósmyndaraunsæi, þau notast bæði við gildi hversdagslegra og einstakra mynda listarinnar. Auk þessa vals á viðfangsefninu aðhyllist ég hugmyndinni um stigveldislausa meðferð veruleikans í öllum sínum handahófskennda vandræðagangi.

Fyrir mér er málun fundinna hluta eins konar leið til að framleiða „tilbúinn-hlut / redy-made“ með höndunum.

Frá þessu segir í tilkynningu frá Deiglunni.

Nýjast