Gestkvæmt hjá ÚA í gær

Stöðugur straumur. Gestir skoðuðu myndasýningu, hátæknivædda fiskvinnslu og vel búinn togra. Síðan v…
Stöðugur straumur. Gestir skoðuðu myndasýningu, hátæknivædda fiskvinnslu og vel búinn togra. Síðan var endað í mötuneytinu, þar sem veitingar voru í boði. / Myndir: Sindri Swan/Samherji

Í tilefni af 80 ára afmæli ÚA var almenningi boðið að kynna sér starfsemi félagsins við Fiskitanga á Akureyri. Við Togarabryggjuna lá togarinn Kaldbakur EA 1, sem sömuleiðis var opinn almenningi og í matsal félagsins var boðið upp á veitingar.

Fyrir framan landvinnsluna hefur verið sett upp ljósmyndasý‎ning, þar sem varpað er ljósi á sögu félagsins.

Félaginu bárust fjölmargar kveðjur og heillaóskir í tilefni tímamótanna.

ÚA segir einfaldlega, takk kærlega fyrir komuna og fjölda góðra kveðja. Þetta var virkilega ánægjulegur dagur.

Bragi Bergmann á Akureyri er þekktur fyrir limrur sínar. Hann færði félaginu eina úr efstu hillu.

ÚA 80 ára

Í fengsælum bæ viljum búa,

að bygðinni þurfum að hlúa.

Framlagið flott,

framtakið gott.

Til heilla þér áttræðu, ÚA.

 

  • Meðfylgjandi eru nokkrar myndir frá deginum.

 

 

 

 

Nýjast