Kvennakórinn Embla ásamt hljómsveit flytja Messu fyrir særða jörð

Kvennakórinn Embla flytur Messu fyrir særða jörð í Glerárkirkju á sunnudag, 1. júní kl. 17.  Mynd að…
Kvennakórinn Embla flytur Messu fyrir særða jörð í Glerárkirkju á sunnudag, 1. júní kl. 17. Mynd aðsend

Kvennakórinn Embla ásamt hljómsveit, Þórunni Ósk Marínósdóttur violuleikara og Erlu Dóru Vogler mezzosópran flytja Messu fyrir særða jörð eftir tónskáldið Ketil Björnstad og textahöfundinn Erik Hillestad. Tónleikarnir verða í Glerárkirkju sunnudaginn 1. júní kl 17. Stjórnandi er Roar Kvam. Erla Dóra lærði söng við Tónlistarskóla Fljótsdalshéraðs, Tónlistarskóla Reykjavíkur og Tónlistarháskóla Vínarborgar.

Erla er fjölbreyttur flytjandi og hefur tekið þátt í ýmsum tónleikaröðum og verkefnum ásamt því að vera flytjandi á upptökum. Erla hefur verið einsöngvari með Kvennakórnum Emblu í nokkrum verkefnum við góðar undirtektir. Þórunn Ósk Marínósdóttir lauk meistaraprófi frá Tónlistarháskólanum í Brussel og hefur starfað í ýmsum kammerhópum auk þess að vera fastráðin við Sinfóníuhljómsveit Íslands. Hún kemur reglulega fram sem einleikari og hefur starfað ötullega á sviði kammertónlistar.

Messan er rytmísk messa, hljómsveitin samanstendur af trommum, bassa, rafgítar, píanói/hljómborði. Þórunn Ósk Marínósdóttir leikur einleik á violu og Erla Dóra Vogler syngur einsöng; hlutverk Móður Jarðar. Kórinn syngur hlutverk manneskjunnar á jörðinni.

Boðskapur messunnar er að við sofnum ekki á verðinum, að við verðum ekki sinnulaus gagnvart jörðinni og lífinu, að við glötum ekki trúnni á sjálft lífið segir í tilkynningu. Tónlistin og textinn eru óhefðbundin fyrir Messu, en láta engann ósnortinn.

Aðgangseyrir er 5000 krónur og miðasala við innganginn

Nýjast