Ársfundur SAk: samskipti, öryggi og gæði í krefjandi umhverfi

Hildigunnur Svavarsdóttir forstjóri SAk. í ræðupúlti.    Mynd sak.is
Hildigunnur Svavarsdóttir forstjóri SAk. í ræðupúlti. Mynd sak.is

Ársfundur Sjúkrahússins á Akureyri (SAk) fór fram í gær. Þar flutti Hildigunnur Svavarsdóttir forstjóri sjúkrahússins ávarp þar sem farið var yfir stöðuna í rekstri og starfsemi SAk, framtíðarhorfur, tækifæri og helstu áskoranir. Yfirskrift fundarins var „Samskipti – Öryggi – Gæði“.

Forstjórinn lagði áherslu á að sjúkrahúsið stæði frammi fyrir miklum áskorunum í starfsemi „Það álag sem verið hefur - bæði er varðar mönnun og starfsemi spítalans, er mjög krefjandi. Í fyrra gætti áfram áhrifa lokunar á hluta starfsemi Heilsuverndar Hlíð, vegna myglu í húsnæði. Sjúklingar á legudeildum SAk voru því lengur inniliggjandi þar sem þau höfðu í engin önnur úrræði að fara og er það ekki ásættanlegt fyrir þennan hóp – þau eiga betra skilið. Um 18% af legurýmum á bráðadeildum og á Kristnesspítala liggja þar undir.„ sagði Hildigunnur.

Nýbygging algjör bylting

 Forstjóri lagði jafnframt áherslu á að langþráðar breytingar séu í augsýn „Gangi fyrirætlanir stjórnvalda eftir, glittir hins vegar í algjöra byltingu í aðstæðum okkar árið 2028, en þá er áætlað að nýbygging við SAk verði tekin í notkun, sem og nýtt 80 rýma hjúkrunarheimili á Akureyri. Þessar áætlanir hreinlega verða að ganga eftir.“ sagði Hildigunnur. Áætlað er að framkvæmdir við 9200 m² viðbyggingu SAk hefjist sumarið 2026, en í henni verður meðal annars aðstaða fyrir lyflækninga-, skurðlækninga- og geðdeildir.

Starfsfólk hjartað í starfseminni

Forstjóri lagði áherslu á mikilvægi húsnæðis, tækjakosts og fjármagns en minnti á að starfsfólk Sjúkrahússins á Akureyri sé hjartað í allri starfseminni „Starfsfólk SAk er ómetanlegt. Elja þeirra, þekking og hæfni kemur í ljós hvern einasta dag. Fyrir hvern þann sem þarf á þjónustu SAk að halda, er það fagmennska starfsfólks og hlýhugur, sem skiptir öllu máli.“

Fjármagnsgrunnur þarf að vera traustari

Rekstur ársins 2024 skilaði jákvæðri niðurstöðu, tæplega 190 milljónum krónum. Hildigunnur sagði: „Þetta var mögulegt vegna samstillts átaks starfsfólks, stjórnenda og í mjög góðri samvinnu við heilbrigðisráðuneytið, sem er okkur ákaflega verðmætt.“ Hún undirstrikaði þó jafnframt að: „fjármagnsgrunnurinn þarf að vera traustari og stöðugri svo hægt sé að viðhalda og þróa þjónustu af þeim gæðum sem samfélagið á rétt á.“

Stafræn umbreyting og nýsköpun í forgangi

Forstjórinn lagði mikla áherslu á stafræna þróun og sagði: „Til að mæta þeim þarf Sjúkrahúsið á Akureyri að setja stafræna þróun og nýsköpun í forgang – með skýra áherslu á bætt klínísk gæði, öryggi og þjónustu við sjúklinga, aukna skilvirkni og hagræðingu, stuðning við starfsfólk og betri samhæfingu þjónustu.“

Hún bætti við að SAk þyrfti að stíga fastar inn í stafræna framtíð og varaði við því að töf gæti haft alvarlegar afleiðingar: „Ef við grípum ekki tækifærin núna, skapast tækniskuld sem getur grafið undan bæði öryggi og gæðum, auk þess sem við glötum möguleikanum á að vera eftirsóknarverður vinnustaður.“

Ávarp forstjóra í heild

Það var  sak.is sem fyrst sagði frá

Nýjast