Hvatningarverðlaun Eyrarrósarinnar í Þingeyjarsveit

Verkefnið Afhverju Ekki hlaut Hvatningarverðlaun Eyrarrósarinnar 2025
Verkefnið Afhverju Ekki hlaut Hvatningarverðlaun Eyrarrósarinnar 2025

Afhverju Ekki, einnig nefnt „The Absolutely Everything Studio“, er þverfaglegt vinnustofu-rannsóknarsetur sem stofnað var árið 2024. Verkefnið er leitt af Dr. Jack Armitage fræði- og listamanni. Afhverju Ekki stuðlar að samvinnu og samstarfi með það að marki að finna lausnir á flóknum vistfræðilegum viðfangsefnum. Setrið er staðsett í Breiðanesi, á Laugum í Þingeyjarsveit. Þegar hefur verið tekið á móti sex fræði- og listamönnum sem komið hafa til vinnudvalar og unnið að hönnun, hugbúnaðarþróun og listsköpun, meðal annars fyrir sýningu Íslands á Feneyjartvíæringnum í arkitektúr.

Starfrækt er keramíkverkstæði sem hefur reynst mikilvægt bæði þegar kemur að námi og listsköpun, sérstaklega fyrir íbúa svæðisins. Á staðnum er einnig fablab, wetlab og vinnurými. Aðstaða þeirra aðila sem þarna dvelja er því til fyrirmyndar. Til framtíðar er stefnt að því að starfrækja verslun með listmuni, taka upp hlaðvörp og standa fyrir ýmiskonar viðburðahaldi.

Eyrarrósin er viðurkenning sem veitt er fyrir framúrskarandi menningarverkefni utan höfuðborgarsvæðisins og voru verðlaunin afhent í nítjánda sinn, fimmtudaginn 15. maí, við hátíðlega athöfn í Alþýðuhúsinu á Siglufirði. Markmið Eyrarrósarinnar er að beina sjónum að og hvetja til menningarlegrar fjölbreytni, nýsköpunar og uppbyggingar á sviði lista og menningar.

Að auki eru í nafni Eyrarrósarinnar veitt þrenn hvatningarverðlaun til verkefna sem eru minna en þriggja ára. Sköpunarmiðstöðin á Stöðvarfirði hlaut Eyrarrósina 2025 og skipar sér í hóp framúrskarandi verkefna sem hlotið hafa verðlaunin á síðustu 20 árum.

Innilegar hamingjuóskir Jack Armitage með frábært verkefni, megi það stækka og dafna .

 

Frá þessu segir á heimasíðu Þingeyjarsveitar

Nýjast