Fjölmenni var í Sandgerðisbót í dag og naut fólk dagskrár í tengslum við Sjómannadaginn ríkulega. Verbúðir voru opnar og boðið uppá smakk af sjávarfangi, Karlakór Akureyrar tók lagið og eitt þúsund grillaðar pylsur runnu vel niður hjá gestum sem eins og fyrr sagði létu sig ekki vanta.
Minningarsigling með Húna ll EA 740 var fjölmenn og falleg, og verður án efa eftirminnileg þeim sem nutu þessa framtaks.
Oddur Helgi Halldórsson er einn þeirra sem stóð vaktina í Bótinni og hann skrifar himinsæll á Facebook. ,, Hátíðin í Bótinni í morgunn tókst vel. Mætti fjöldi manns. Til marks um það voru grillaðar upp undir 1000 pylsur. Auk annars góðgætis sem boðið var upp á í hinum ýmsu verbúðum. Andinn var fóðraður líka, því karlakórinn söng, bátar og verbúðir voru til sýnis, auk nokkurra skipslíkana. Hoppukastali fyrir börnin og fleira.Veðrið lék við okkur og þetta var góð stund. Þakka öllum þeim fjölmörgu, sem lögðu hönd á plóg og ekki síður þeim fjölda gesta sem heimsóttu okkur. Takk, takk, þið eruð æðisleg!!“
Á morgun á sjálfan Sjómanndaginn heldur dagskráin svo áfram, messa verður í Glerárkirkju kl 11 og við það tilefni verða tveir gamlir sjómenn heiðraðir.
Blómsveigur verður lagður að minnisvarða látinna sjómanna við kirku eftir messu, og Sjómannafélag Eyjafjarðar býður upp á súpu í safnaðarheimilinu eftir athöfn.
Húni siglir góðan hring með bæjarbúa kl 13
Myndir segja Meira en mörg orð, Oddur Helgi Halldórsson og Sigfús Ólafur Helgasson voru með myndavélar á lofti og gáfu samþykki sitt fyrir birtingu mynd sem hér sjást.