Smíði á minnismerki um síðutogara að hefjast - Verkið verði í alfaraleið og öllum aðgengilegt

Áferð minnismerkisins verður áþekk minnismerki um síldarstúlkurnar sem stendur fram við Róaldsbragga…
Áferð minnismerkisins verður áþekk minnismerki um síldarstúlkurnar sem stendur fram við Róaldsbraggann á Siglufirði. Gert er ráð fyrir að verkið verði lýst upp bæði að neðan og ofan og að til hliðar við það verði söguskilti og í námunda við það verði einnig sætisbekkur.

„Það er allt klárt nema staðsetningin,“ segir Sigfús Ólafur Helgason sem er í forsvari fyrir hóp fyrrverandi ÚA sjómanna. Þeir hafa nú samið við Slippinn um smíði minnismerkis um sögu síðutogara og sjómenn. Stefnt er að því að setja verkið upp í sumar.

Sigfús segir að sjómenn vilji gjarnan að minnismerkið verði í alfaraleið þar sem flestir geti barið það augum og benda á staðsetningu sunnan við Menningarhúsið Hof. Skipulagsráð fól á dögunum skipulagsfulltrúa að ræða við hópinn, „um hvort ekki finnist aðrir möguleikar á staðsetningu minnisvarðans,“ eins og það er orðað í bókun ráðsins. Sigfús segir bæði Dalvíkingar og Siglfirðingar hafi lýst yfir áhuga á að hýsa minnismerkið, náist ekki góð lending varðandi staðsetningu miðsvæðis á Akureyri að mati hópsins.

Fjármögnun lokið

„Málið er í góðum farvegi, við skrifuðum undir samning um smíðina við Slippinn í vikunni, það er verið að leggja lokahönd á hönnun og lýsingu verksins og þegar er búið að tryggja fjármögnun þess. Nú bíðum við bara spenntir eftir að minnismerkið verði tilbúið einhvern tíma í sumar þannig að hægt verði að setja það upp. Vonandi á Akureyri og í alfaraleið,“ segir Sigfús.

Minnismerki ekki listaverk

Hann bætir við að þetta sé ekki listaverk heldur minnismerki þar sem fólk getur komið að og lagt blóm eða annað til heiðurs látnum og týndum sjómönnum. „Við sáum í ferð til Hull á liðnum vetri hversu mikla þýðingu minnismerki af þessu tagi höfðu í Bretlandi. Við eigum að sýna sögu okkar sóma og þeim mönnum sem sóttu sjóinn, tókust á við óblíð náttúruöfl og þurftu sumir hverjir að lúta í lægra haldi fyrir þeim,“ segir Sigfús.

Nýjast