ÚA 80 ára - Gjörið svo vel, gangið í bæinn

Frystihús ÚA við Fiskitanga á Akureyri. Togarinn Kaldbakur EA 1 liggur vuið bryggju, fánum prýddur /…
Frystihús ÚA við Fiskitanga á Akureyri. Togarinn Kaldbakur EA 1 liggur vuið bryggju, fánum prýddur / mynd: Hörður Geirsson

Í tilefni af 80 ára afmæli Útgerðarfélags Akureyringa er almenningi boðið að kynna sér starfsemi ÚA við Fiskitanga á Akureyri, laugardaginn 31. maí frá klukkan 11:00 til 13:00.

Fiskvinnsluhús ÚA verður opið, ‏þar fer fram tæknivædd bolfiskvinnsla og unnar eru ferskar og frystar afurðir fyrir neytendamarkað.

Togarinn Kaldbakur EA 1 verður við Togarabryggju, sem verður opinn almenningi á sama tíma.

Í matsal ÚA verður boðið upp á veitingar í tilefni tímamótanna.

Fyrir framan fiskvinnsluhúsið er ljósmyndasýningin Myndbrot úr sögu ÚA, þar er varpað ljósi á sögu félagsins í 80 ár.

Þetta er því tilvalið tækifæri til að kynnast ísenskum sjávarútvegi.

Verið velkomin á Fiskitanga, laugardaginn 31. maí, frá klukkan 11:00 til 13:00.

Fagur fiskur úr sjó

Á sjómannadaginn, sunnudaginn 1. júní klukkan 13:00 opnar sýningin Fagur fiskur úrsjó í Iðnaðarsafninu við Krókeyri á Akureyri. Á sýningunni er saga ÚA sögð með ljósmyndum, kvikmyndum og munum.

Sýningin markar upphaf að söfnun á sögum og minningum þeirra sem störfuðu hjá ÚA.

Ókeypis er á sýninguna þennan dag og veitingar verða í boði.

Starfsfólk ÚA / mynd Hörður Geirsson

 

Hátæknin er allsráðandi í vinnslunni / mynd Hörður Geirsson

 

Allir togarar ÚA við Torfunesbryggju, árið 1961. Togararnir voru í landi vegna verkfalls. Ljósmynd: Eðvarð Sigurgeirsson.

Þetta má fyrst sjá á www.samherji.is

 

 

Nýjast