
Fjölmenni tók þátt í dagskrá í tengslum við Sjómannadaginn
Fjölmenni var í Sandgerðisbót í dag og naut fólk dagskrár í tengslum við Sjómannadaginn ríkulega. Verbúðir voru opnar og boðið uppá smakk af sjávarfangi, Karlakór Akureyrar tók lagið og eitt þúsund grillaðar pylsur runnu vel niður hjá gestum sem eins og fyrr sagði létu sig ekki vanta.