Hið árlega sólarhringssund fór fram dagana 23. og 24. apríl þar sem iðkendur úr keppnishópum mættu og syntu boðsund í hollum. Aldrei, svo ég muni, hefur sundhópurinn sem synt hefur í sólahringsundinu verið jafn ungur en elstu iðkendurnir okkar í dag eru á 15 ári að frátöldum krókódílum og görpum.
Við fengum alveg einstaklega gott veður þennan sólarhring og eru allir með alveg ágætis ,,tanfar" eftir sundið ;) Sólarhringssundið er aðal fjáröflun félagsins og eflaust sú elsta líka. Síðustu ár höfum við synt inn í sumarið sem hefur fallið í góðan jarðveg og er stefnan að hafa sólarhringssundið á þessum tíma í komandi framtíð. Það er alltaf byrjað að synda klukkan 15:00 á miðvikudeginum og lýkur þá sundi klukkan 15:00 á sumardaginn fyrsta. Allur ágóði af sundinu fer í æfingaferðir iðkenda en einnig er keppnisferð á Vit-Hit leikana á Akranesi niðurgreidd að hluta. Vit-Hit leikarnir er eina mótið sem allir hóparnir sem synda í Sólarhringsundinu fara saman á.
Katrín Sif Antonsdóttir
Núna í lok sumars eru svo elstu iðkendurnir okkar í Sverðfiskum, Sprettfiskum og Steinbítum að fara í æfingaferð til Svíþjóðar en reynt er að fara erlendis í æfingarferðir annað hvert ár. Krókódílarnir okkar eru svo á leið í keppnisferð til Svíþjóðar núna um helgina. Markmiðið hefur alltaf verið að synda 100 kílómetrana. Þau 10 ár sem ég hef átt barn sem er að synda í sólarhringssundinu man ég ekki til þess að þessu takmarki hafi ekki verið náð.
Ég var þó á báðum áttum hvort það tækist í ár þar sem að sundhópurinn var svo ungur og eins og ég sagði hér að ofan man ég ekki til þess að hann hafi verið svona ungur áður en krakkarnir sem oftast voru að synda í gegnum nóttina voru á aldrinum 14-18 ára allavegana. Ég er því alveg ótrúlega stolt af krökkunum okkar að hafa náð takmarkinu sem er sett ár hvert og það ekki bara rétt sleikt, heldur farið alveg rúmlega 12 kílómetra umfram.
Í ár voru syntir 112,45 km sem er frábær árangur og þegar öll áheit hafa skilað sér inn verður andvirði kílómetersins í kringum 14.000 krónur og því óhætt að segja að krakkarnir hafi staðið sig alveg ótrúlega vel bæði ofan í lauginni og einnig í að safna áheitum