Ólöf María Beck Þorvaldsdóttir Mynd Krabbameinsféalgið
Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis á marga velunnara og það er auðvitað frábært og mjög þakkarvert. Á Facebooksíðu félagsins er sagt frá höfðinlegri gjöf sem félaginu barst á dögunum.
,,Ólöf María Beck Þorvaldsdóttir kom til okkar á dögunum og færði félaginu 150 þúsund krónur í styrk. Ólöf var að útskrifast og afþakkaði gjafir en óskaði eftir peningum sem hún gæti styrkt félagið með, en málefnið stendur henni nærri.
Við þökkum Ólöfu kærlega fyrir."