
Fólk greiðir hundruð þúsunda í dvalarkostnað vegna heilbrigðisþjónustu
Aðalfundur Krabbameinsfélagsins skorar á heilbrigðisráðherra að endurskoða greiðsluþátttöku vegna sjúkradvalar innanlands og tryggja, til dæmis með greiðsluþaki, að kostnaður sjúklings og aðstandenda vegna nauðsynlegrar dvalar á sjúkrahóteli sligi ekki fólk af landsbyggðinni.