Nemendur Hlíðarskóla færðu ADHD samtökunum veglegan styrk sem þau söfnuðu með áheitahlaupi

Nemendur Hlíðarskóla færðu ADHD samtökunum veglegan styrk  Mynd aðsend
Nemendur Hlíðarskóla færðu ADHD samtökunum veglegan styrk Mynd aðsend

Nemendur Hlíðarskóla færðu ADHD samtökunum veglegan styrk sem þau söfnuðu með áheitahlaupi.

Áheitahlaupið er árviss viðburður í Hlíðarskóla, sérskóla innan grunnskóla Akureyrar. Áður en hlaupið fer fram koma nemendur skólans sér saman um það hvaða málefni þau vilja styrkja. Haldnir eru fundir þar sem tekið er við uppástungum frá nemendum. Að fengnum hugmyndum kjósa þeir um málefnin. Að þessu sinni ákváðu nemendur að styrkja ADHD samtökin og er það von þeirra að peningurinn sem safnaðist komi að góðu gagni í þágu ungs fólks með ADHD.

Áheitasöfnun fer þannig fram að í aðdraganda hlaupsins ganga nemendur á milli starfsfólks og biðja um áheit fyrir hverja ferð sem þeir hyggjast ganga/hlaupa upp heimreiðina að skólanum, um kílómetra langa leið. Einnig söfnuðu nokkrir nemendur áheitum heima fyrir, meðal foreldra og annarra aðstandenda . Áheitasöfnun gekk vel og nemendur stóðu sig einnig virkilega vel í hlaupinu og náðu að safna samtals 225.400 krónum.

Styrkurinn var afhentur 28. maí og tók Jóna Kristín Gunnarsdóttir verkefnisstjóri fræðslumála við honum fyrir hönd samtakanna.

ADHD samtökin þakka nemendum Hlíðarskóla kærlega fyrir.

Frá þessu segir i tilkynningu frá ADHD samtökunum.

Nýjast